Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum Truth Social um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri.