Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun

Breski grínistinn Russell Brand var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisofbeldi fyrir dómi í dag. Réttarhöld yfir honum hafa staðið yfir síðan 12. október.Brand er 51 árs og öðlaðist frægð fyrir framkomu sína í útvarpi, sjónvarpi og síðar kvikmyndum. Hann var sakaður um nauðgun og kynferðisofbeldi gegn sex konum, á tíu ára tímabili. Ákæran var í sjö liðum en hann neitaði alfarið sök.Brand var sakfelldur í fjórum ákæruliðum, fyrir að nauðgan ungri konu eftir uppistandssýningu í vesturhluta Lundúna, árið 2009, og í þremur ákæruliðum fyrir kynferðisofbeldi.Við réttarhöldin lýsti saksóknari Brand sem kynferðisafbrotamanni sem hefði haft óseðjandi þörf fyrir kynferðisleg samskipti án tillits til aðstæðna eða við hvern hann ætti í samskiptum.Þolendur lýstu sínum samskiptum við Brand fyrir dómi
Russell Brand sakfelldur fyrir nauðgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar