Jensen Huang, forstjóri Nvidia, hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni til fjörutíu ára með konu sem bandaríska leyniþjónustan telur að sé njósnari á vegum kínverska ríkisöryggisráðuneytisins.Nvidia hefur hafið óháða rannsókn á málinu. Stjórn fyrirtækisins greindi frá því að hún teldi enga ástæðu til ætla að leyndarmál þess væru í hættu. Þar kom einnig fram að Huang haldi áfram að stýra fyrirtækinu.Jensen Huang sendi frá sér yfirlýsingu til starfsfólks þar sem hann viðurkenndi að hafa verið „ótrúr“ eiginkonu sinni og baðst afsökunar á að hafa sært hana og börn þeirra.Hann sagðist axla fulla ábyrgð á gjörðum sínum og viðurkenndi að hafa brugðist skyldum sínum gagnvart starfsfólki, stjórn og hluthöfum Nvidia.„Hvað varðar áhyggjur af þjóðaröryggi sem komið hafa fram í fréttum