Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að rýma húsnæði.Hótanirnar komu í tölvupósti þar sem sagði að sprengja hefði verið sett í bygginguna og að hún spryngi eftir fjörutíu og fimm mínútur. „Klukkan tifar,“ sagði einnig í póstinum. GEFA TIL KYNNA RÚSSNESKA TENGINGU Tölvupóstarnir sem voru sendir til RTE og Nova voru undirritaðir með nafninu Mikhail Andropov. Þá stóð að höfundurinn væri einn af leiðtogum hóps sem bæri ábyrgð á sprengjuhótunum sem bárust um tugi farþegavéla í Evrópu í vikunni.Þetta væri aðeins byrjunin á hvað biði Evrópuríkja í nálægri framtíð. Engar sprengjur fundust á sjónvarpsstöðvunum.Eftirnafn höfundarins er það sama og Júríj Andropovs fyrrum aðalritara kommúni