| 16:48 | Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni 90 Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Einn aðalleikari þáttanna sást spóka sig í miðborg Reykjavíkur á dögunum.Samkvæmt heimildum fréttastofu voru tökur í verslun Krónunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Tökulið hefur einnig verið í miðborg Reykjavíkur.Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og verið vel tekið af gagnrýnendum. Þeir eru úr smiðju Tinu Fey, sem fer einnig með eitt aðalhlutverkið.Þættirnir fjalla um vinahjón sem fara reglulega saman í ferðalög og hvernig líf þeirra tekur breytingum í gegnum þau.Auk Fay fara Domingo Colman, Steve Carrell, Will Forte, Erika Henningsen og Marco Calvani með aðalhlutverk í þáttunum.Colman Domingo, einn aðalleikari þáttanna, heimsótti verslunina Kirsuberjatréð í miðborg Reykjavíkur í vikunni.Domingo hefur verið einn | |
| 16:26 | Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook 90 Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, segist ekki hafa talið sig eiga neitt val um afsögn þar sem hann hafði ekki heilsu til þess að berjast fyrir embætti sínu eftir aðgerð. Hann eigi í dag engin samskipti við Ingu Sæland, sem hafi eytt honum af vinalista sínum á Facebook. | |
| 15:55 | Ráðherra veitir ekki viðtal: „Ennþá það slappur“ 81 Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, getur ekki veitt viðtöl í dag vegna veikinda, að sögn aðstoðarmanns hans, en hann var fjarverandi á ríkisstjórnarfundi í morgun. | |
| 13:13 | Freyr látinn fjúka frá Eflingu 71 Frey Rögnvaldssyni, upplýsingafulltrúa Eflingar, var sagt upp stöfum í morgun. | |
| 12:38 | Freyr látinn fara frá Eflingu 67 Freyr Rögnvaldsson var upplýsingafulltrúi Eflingar var látinn fjúka á stuttum fundi í morgun. Perla Ösp Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Eflingar segir að uppsögn hans hafi ekkert með ESB eða nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu að gera. | |
| 11:54 | Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal 100 Guðmundur Ingi Kristinsson segir Ingu Sæland hafa vitnað í ráðherrasamtal sem um gildi trúnaður í ræðustól Alþingis í gær. Honum segist létt eftir að hafa birt skilaboð frá fyrrverandi aðstoðarkonu. Sannleikurinn sé staðreynd ekki upplifun. | |
| 09:19 | Fjölskyldur hérlendis eiga 60 milljónir og skulda 15 77 Heildarskuldir fjölskyldna landsins hafa ekki verið minni sem hlutfall af landsframleiðslu í aldarfjórðung. Þær voru 69,5% af landsframleiðslu í fyrra. Það hlutfall hafði þá ekki farið undir 70% síðan 2002 og ekki verið lægra síðan 2001 þegar skuldir fjölskyldnanna voru 69,3% af landsframleiðslu.Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar þar sem skuldir og eignir eru metnar.Meðalfjölskyldan átti 60,4 milljónir króna í fyrra þegar verðmæti fasteigna, ökutækja, innstæðna í bönkum og verðbréfa voru lögð saman. Meðalfjölskyldan skuldar 14,7 milljónir.Elsta fólkið á mestar eignir að meðaltali, 111 milljónir, en eignir yngsta aldurshópsins jukust mest. | |
| 08:45 | Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá 67 Birgir Guðmundsson, prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri, segir umræðu í kringum afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar óheppilega fyrir Ingu Sæland, Flokk fólksins og ríkisstjórnina í heild. Kjarni málsins sé að Inga Sæland hafi ekki sagt alveg satt og rétt frá og það geti rýrt traust. Rætt var við Birgi í Bítinu á Bylgjunni um málið. | |
| 07:00 | María Sigurðardóttir er látin 94 María Sigurðardóttir, eða Mæja eins og hún var alltaf kölluð, er látin 69 ára að aldri. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi þann 11. ágúst eftir baráttu við krabbamein. | |
| 00:42 | Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum 81 Fulltrúi Íslands sat áfram á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tók til máls. Fulltrúar fjölda ríkja gengu úr salnum á fimmtudag í mótmælaskyni en stríðsrekstur Ísraels á Gasa hefur verið harðlega gagnrýndur. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ekki í salnum þegar atvikið átti sér stað. |
| 23:51 | Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku 74 Nýgengi krabbameina meðal fullorðinna undir fimmtugu fer vaxandi á Norðurlöndunum. Hefur tíðni tólf krabbameinstegunda aukist meira meðal fólks á aldrinum 20 til 49 ára en þeirra á aldrinum 50 til 84 ára. | |
| 19:58 | Auglýsingin keypt fyrir mistök 86 Mannleg mistök leiddu til þess að Stafrænt Ísland keypti auglýsingu á Facebook, þvert á stefnu stjórnvalda. | |
| 19:48 | Bogi biðst afsökunar 100 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir verkfall flugvirkja hafa haft heilmikil áhrif og ollið mikilli röskun í gærmorgun. Hann vill biðja farþega og viðskiptavini flugfélagsins afsökunar í kjölfar truflana og óþæginda sem það olli. | |
| 19:41 | „Mistök að fela honum forystu“ 95 Guðmundur Ingi Þóroddsson segir að það hafi verið mistök að fela nafna sínum, Guðmundi Inga Kristinssyni, forystu í mennta- og barnamálum. Hann telur rétt hafa verið að skipta um ráðherra en segir að það breyti því ekki að gagnrýna megi hvernig staðið var að brotthvarfi hans úr ríkisstjórn. | |
| 19:33 | Svepparisi fannst í Heiðmörk 79 Edyta Wyrzykowska átti ekki von á því að koma heim með tæplega þriggja kílóa kóngssvepp þegar hún fór í göngutúr í Heiðmörk. Sveppurinn er 38 sentímetrar á hæð og hatturinn um 32 sentímetrar í þvermál.Edyta segist fara mjög oft í gönguferðir um skóginn en í þetta sinn hafi hún alls ekki verið að leita að sveppum.„Þessi kóngssveppur fann mig. Ég var ekki að leita að sveppum, heldur bara að skoða og dást að þeim. Svo kom þessi óvænta uppákoma,“ segir Edyta.Kóngssveppurinn vegur 2.864 grömm. Edyta fann einnig nokkra minni kóngssveppi í Heiðmörk, þar á meðal tvo sem vógu 552 og 778 grömm.Hún segir slíkan fund geta gerst einu sinni á ævinni og lýsir honum sem töfrum íslenskrar náttúru og skógarins.Risinn fær þó ekki að standa lengi til sýnis. Edyta ætlar að nýta hann í eldhúsinu og segir að bæð | |
| 17:43 | Guðmundur hristi höfuðið yfir orðum Ingu 67 Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherraembætti og umfjöllun RÚV þess efnis voru í brennidepli í upphafi óundirbúinna fyrirspurna á Alþingi í dag. Fyrr í dag var greint frá afarkostum sem Guðmundi voru settir þegar hann var í veikindaleyfi.Guðrún Hafsteinsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins beindi spjótunum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formanni Flokks fólksins, í óundirbúnum fyrirspurnum og krafði Ingu um skýringar á málinu.Inga sagðist ekki ætla að ræða opinberlega málefni Guðmundar Inga en sagði að henni þætti leitt að hún og Guðmundur Ingi upplifðu samtöl þeirra með ólíkum hætti.Guðmundur Ingi var í þingsal og hristi höfuðið meðan hann hlustaði á Ingu ávarpa þingið. | |
| 14:55 | „Guð minn góður, hvernig eru þá hin?“ 70 „Ég verð nú bara að segja, virðulegur forseti, hér enn og aftur að ef þetta eru hlý og falleg skilaboð til þingmanna Flokks fólksins, guð minn góður, hvernig eru þá hin? Stríð, stríð. Hlý og falleg.“ | |
| 14:35 | Guðmundur: „Langbest að þeim samskiptum sé lokið“ 83 „Látum vera að þau komi illa fram við mig. Það kannski fylgir oft pólitík, mér finnst hún mjög skrýtin þessi pólitík stundum, en þegar þeir eru farnir að blanda fjölskyldu minni inn í málið þá finnst mér það vera komið langt út fyrir eðlileg samskipti.“ | |
| 11:59 | Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ 71 Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrverandi hefur birt samskipti sín við Guðbjörgu Ingu Magnúsdóttur þáverandi aðstoðarmann sinn og eiginkonu Ragnars Þórs Ingólfssonar eftirmanns hans í ráðherraembætti frá því í janúar þar sem honum var tjáð að tveir kostir væru í stöðinni, uppsögn eða stríð. Guðmundur segir svíða mest hvernig átt hafi verið við fjölskyldu hans í málinu. | |
| 07:46 | Andlát: Baldur Sveinsson 74 Baldur Sveinsson, kennari og flugvélaljósmyndari, er látinn 84 ára að aldri. Hann lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi 15. september. |
| 23:06 | Uppsagnir hjá ráðuneytinu 51 Tveimur starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins hefur verið sagt upp störfum, en báðir gegndu þeir stöðu sérfræðings innan ráðuneytisins. | |
| 20:30 | Uppsagnir í heilbrigðisráðuneytinu 54 Tveimur starfsmönnum í heilbrigðisráðuneytinu hefur verið sagt upp störfum. Báðir starfsmennirnir gegna stöðu sérfræðings í ráðuneytinu. Þetta staðfestir Margrét Erlendsdóttir upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.Hún segir að greint hafi verið frá uppsögnunum á starfsmannafundi í dag. Starfsmönnunum hafi verið sagt upp til þess að mæta aðhaldskröfu ríkisstjórnarinnar, sem hefur áhrif á stofnanir ríkisins þar á meðal ráðuneytin. | |
| 19:15 | Notaði rangan kjörseðil og skrifaði á hann „Já“ 58 Aðeins var eitt ágreiningsatkvæði úr Reykjavíkurkjördæmi suður á boði landskjörstjórnar eftir síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu. | |
| 14:55 | Dagný Ósk látin 100 Dagný Ósk Vestmann er látin þrjátíu og átta ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Dagný opnaði sig um veikindin í viðtali á Vísi um helgina þar sem hún hvatti fólk til þess að staldra við og finna gleðina í litlu hlutunum í lífinu. Hún lætur eftir sig eiginmann og tvö börn. | |
| 14:46 | Rétti fram þúsund króna seðil og fékk 30 kíló af kókaíni 54 Maður sem ákærður hefur verið í sjókistumálinu svokallaða rétti erlendum mönnum 1.000 króna seðil áður en töskum, sem taldar eru hafa innihaldið um 30 kíló af kókaíni, var komið fyrir í bifreið hans. | |
| 12:40 | Lögreglan lýsir eftir Emil Eydal 62 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Emil Eydal Haraldssyni sem er tíu ára. | |
| 12:21 | Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi 77 Framkvæmdastjóri hjá bílaumboðinu BL er einn þeirra sem handteknir voru í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu vegna gruns um fíkniefnabrot í gær. | |
| 11:35 | Framkvæmdastjóri bílaumboðs í skýrslutöku 63 Framkvæmdastjóri sölusviðs hjá stóru bílaumboði var færður í skýrslutöku í gær vegna máls er varðar stórfelld fíkniefnalagabrot og peningaþvætti, en fjöldi manns var handtekinn í aðgerðum lögreglu vegna málsins í gær. | |
| 11:18 | Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu 69 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á annan tug manna í umfangsmiklum aðgerðum í gær. Sex voru leiddir fyrir dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í gærkvöldi og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. | |
| 10:50 | „Lá í loftinu allan tímann“ 54 „Ég var rétt í þessu að frétta þetta og ég segi bara að þetta lá í loftinu allan tímann. Þetta kemur mér ekkert á óvart þrátt fyrir að hafa verið í samtölum við ráðuneytin og ákveða ráðherra,“ segir Óskar. |
| 23:55 | „Hefði getað farið svo miklu verr“ 73 „Honum líður betur en langt bataferli er fram undan.“ | |
| 23:45 | Stal hálfum bíl og flúði til Spánar 71 Gróa Hreinsdóttir, íslenskur rútubílstjóri, segir farir sínar ekki sléttar eftir að vinnufélagi hennar stakk af með hálfgreidda Opel-bifreið sem hún seldi honum af greiðasemi með nokkrum afslætti. Maðurinn stakk af með bifreiðina til Spánar. | |
| 22:32 | Færðir fyrir dómara eftir handtökurnar 68 Að minnsta kosti þrír hafa verið færðir fyrir dómara í kvöld, í fylgd lögreglu, eftir að hafa verið handteknir í stórri aðgerð fyrr í dag grunaðir um aðild að stórfelldum fíkniefnalagabrotum og peningaþvætti. | |
| 22:08 | Segist þurfa að troða ferðamönnum í rafbíla 68 Ríkisstjórnin vill setja hraðari rafvæðingu bílaflotans í forgang til að draga úr losun. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að bílaleigur ráði hvort þær verði í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða dragbítur. Bílaleigur hafi hingað til keypt hlutfallslega miklu færri rafmagnsbíla en almenningur. Eru bílaleigur að draga lappirnar eða ættu stjórnvöld að líta sér nær?Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar, og Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, voru gestir Kastljóss í kvöld.Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir bílaleigur ekki standa í vegi fyrir rafvæðingu bílaflotans heldur ferðamenn sem vilji ekki rafbíla. Teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun segir enga tæknilega fyrirstöðu fyrir rafvæðingu b | |
| 19:15 | Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu 68 Fjöldi manns var handtekinn í samhæfðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun í tengslum við rannsókn á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu og peningaþvætti. | |
| 15:59 | Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð 100 Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ummæli Guðmundar Inga Kristjánssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, í síðustu viku ekki svara verð.Guðmundur Ingi sagði af sér sem ráðherra í vetur og sagði sig úr Flokki fólksins. Hann greindi frá ástæðum afsagnar sinnar í viðtali við fréttastofu í síðustu viku og sagði Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, hafa krafist afsagnar hans á sjúkrabeði.Honum hefði blöskrað þegar aðstoðarkona hans sendi honum texta í kjölfarið um hvernig hann ætti að segja af sér eftir samtal við aðstoðarmann Ingu.Aðstoðarkona hans var Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, eiginkona Ragnars Þórs. Hann kom inn í ríkisstjórnina eftir að Guðmundur Ingi lét af embætti og tók við þáverandi ráðuneyti Ingu Sæland, sem tók við ráðuneyti Guðmundar Inga. | |
| 11:53 | Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ 85 Innviðaráðherra vísar á bug því að Icelandair hafi fengið vilyrði stjórnvalda um inngrip í verkfall flugvirkja. Hann segir þær ásakanir furðulegar. | |
| 11:07 | „Bregðast þarf við áður en banaslys verður“ 74 „Bregðast þarf við áður en banaslys verður,“ sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, um akstur barna undir bílprófsaldri á farartækjum sem komast á allt að hundrað kílómetra hraða, á Umferðarþingi Samgöngustofu í Gamla bíói í morgun. | |
| 08:25 | 100 milljónir gufuðu upp við áfrýjun 73 Karlmaður sem flutti hingað til lands og slasaðist alvarlega eftir nokkurra mánaða vinnu fær ekki þær tryggingabætur sem honum höfðu verið dæmdar í héraði. Landsréttur sneri fyrri dómi við. Dómararnir sögðu að ekki hefði verið sýnt fram á að víkja ætti frá almennum viðmiðum um bætur.Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sjóvá-Almennar til að greiða manninum 147 milljónir króna í bætur vegna örorku sem maðurinn hlaut í vinnuslysi. Frá því áttu að dragast greiðslur upp á 47 milljónir sem tryggingafélagið hafði greitt manninum á grundvelli síns mats.Bæturnar miðast við hverjir framtíðartekjumöguleikar mannsins hefðu verið ef ekki væri fyrir slysið.Tryggingafélagið og manninn greindi á um hvort miða ætti bætur við meðallaun síðustu þriggja ára eða launin sem maðurinn hafði í því starfi sem hann gegndi | |
| 05:53 | Grunaður um gróft ofbeldi og ítrekaðar nauðganir árum saman 84 Landsréttur staðfesti í síðustu viku úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra um að karlmaður sæti gæsluvarðhaldi til 9. október. Maðurinn er grunaður um ítrekuð kynferðisbrot og annað ofbeldi gegn sambýliskonu sinni á margra ára tímabili.Konan tjáði sig um áralangt ofbeldi mannsins gagnvart sér þegar lögreglan kom á heimili fólksins undir lok ágúst. Hún lýsti miklu líkamlegu ofbeldi, kynferðislegu ofbeldi, stjórnun og kúgun. Hún sagði manninn ítrekað hafa tekið sig hálstaki auk þess sem hann hefði stungið hana í bakið og neytt sig til kynlífs.Við rannsókn lögreglu kom í ljós myndefni í síma mannsins þar sem hann virtist hafa mök við konuna meðan hún svaf. Konan vissi ekki af þessum upptökum og varð fyrir áfalli þegar hún sá myndirnar.Maðurinn hefur játað sök að hluta, bæði kynferðisbrot og o |
| 23:15 | Vilja breytingar: Leifsstöð kemur verst út 61 FÍB ber gjaldtökuna við Leifsstöð saman við tíu evrópskar flugstöðvar. | |
| 18:30 | Icelandair gefur út yfirlýsingu 54 Frestun á verkfalli flugvirkja Icelandair, sem á að hefjast á miðnætti aðfaranótt miðvikudags, myndi ekki draga úr þeim skaða sem þegar hefur orðið heldur framlengja óvissutímabilið og auka tjón allra aðila enn frekar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu Icelandair. | |
| 17:34 | Lárus Welding á endastöð hjá MDE 67 Mál Lárusar Welding á hendur íslenska ríkinu verður ekki tekið fyrir í yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE). Dómstóllinn hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn rétti Lárusar í Stím-málinu svokallaða. | |
| 17:10 | Diljá komin í veikindaleyfi 91 Júlíus Viggó Ólafsson tók í dag sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins. | |
| 16:02 | Hefði þegið samtal við Jóhannes 65 Stofnandi Læsis segir nýlega umræðu um smáforritið að miklu leyti ósanngjarna. Forritið sé ekki samfélagsmiðill og ekki ætlað börnum. | |
| 15:38 | Sigmundur sendi kveðju á Sheeran 54 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins virðist aðdáandi breska tónlistarmannsins Ed Sheeran, ef eitthvað er að marka nýjustu færslu Sigmundar á X. | |
| 14:50 | Vill ekki að eftirlitið kæfi hlaðvörpin 64 Eftirlit má ekki verða til þess að kæfa hlaðvörp í fæðingu, segir Logi Einarsson menningarmálaráðherra. Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hann á Alþingi hvort eðlilegt væri að fjölmiðlanefnd hótaði hlaðvarpsfólki dagsektum á meðan beðið væri eftir breytingum á fjölmiðlalögum. | |
| 14:35 | Segir legstein ömmu sinnar hafa horfið 56 Guðlaugur Ottesen Karlsson greinir frá því í færslu á Facebook að legsteinn ömmu sinnar hafi horfið úr Fossvogskirkjugarði einhvern tímann á síðustu tveimur til þremur vikum. | |
| 12:31 | Sigmar kominn í veikindaleyfi 63 Valdimar Breiðfjörð Birgisson tekur sæti á Alþingi í dag sem varaþingmaður fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. | |
| 11:46 | Sigmar í veikindaleyfi 100 Varaþingmaður tekur í dag sæti á Alþingi fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. Sigmar hefur verið fjarverandi frá upphafi þingvetrar og er kominn í veikindaleyfi. |
| 22:23 | Úttekt VG: Þögnin ein í Grindavík 66 Þögnin ein ríkir í Grindavík, aðeins vindurinn gnauðar milli tómra húsa hefst frásögn og úttekt norska dagblaðsins VG á stöðu Grindavíkur eftir hamfarirnar 2023. Blaðamaður ræðir við Grindvíkinga sem hafa sitt að segja og Siggi bakari er á sínum stað, segist stundum ekki viss um hvort hann reki bakarí eða safn. | |
| 22:17 | Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ 72 Parkour-inniaðstaða sem hefur verið nýtt af iðkendum jaðaríþróttarinnar í rúm fimm ár verður jöfnuð við jörðu innan nokkurra mánaða og enn hefur ekki fundist nýtt húsnæði fyrir starfsemina. Sjálfboðaliðar sem hafa leigt rýmið og boðið upp á kennslu sjá fram á að þurfa að færa það sem bjargað verður í gám og leggjast í dvala yfir veturinn. | |
| 22:01 | Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman 66 Ríkið hafði betur gegn hjónunum Ingu Dóru Sigurðardóttur og Berki Arnviðarsyni í Landsrétti. Málið varðar 2,5 prósenta skattaálag sem hjónunum var gert að greiða þegar þau fluttu heimilisfestu fyrirtækis síns frá Danmörku til Íslands afturvirkt. Þau fá 23 milljóna króna álagið ekki endurgreitt. | |
| 15:05 | Áttatíu sinnum til Íslands 89 Íslandsvinurinn Catherine Ulrich er nú mætt til landsins í 80. sinn. Hún hefur unnið ötullega að því að kynna Frökkum land og þjóð. | |
| 14:30 | Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ 83 Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari hefur sent Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra bréf vegna smáforrits sem hann þarf að nota, með barninu sínu, til að skrá heimalestur. Hann segir forritið ekkert annað en samfélagsmiðil sem ýti undir óþarfa samanburð. Hann telur að snúa ætti aftur til þess að skrá lestur á blað. | |
| 10:54 | Ákærður fyrir stórfellt brot gegn barnabarni sínu 64 Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni og stórfellt brot í nánu sambandi gegn barnabarni sínu.Meint brot átti sér stað á heimili mannsins 22. desember 2023. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa dregið buxnaskálmar á barnabarni sínu upp að mjöðmum og nuddað ber læri hennar og nára, farið með hönd undir nærbuxur og snert og nuddað kynfæri hennar. Með þessu hafi ákærði ógnað lífi, heilsu og velferð stúlkunnar.Ekki kemur fram í ákærunni hversu gamalt barnið var þegar brotið átti sér stað en í einkaréttarkröfu kemur fram að stúlkan sé ólögráða. Foreldri krefst þess fyrir hönd hennar að maðurinn greiði henni 3,5 milljónir króna í miskabætur.Málið var tekið fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. | |
| 10:36 | Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks 63 Ný stjórn Ungs jafnaðarfólks var kjörin á landsþingi þeirra um helgina. Jóhannes Óli Sveinsson, forseti samtakanna, var kjörinn til tveggja ára á síðasta landsþingi og þurfti því ekki að endurnýja umboð sitt. Fimm nýir fulltrúar voru kjörnir í stjórn samtakanna. | |
| 10:02 | „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ 80 Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman af því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félags um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfirði. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum vikum og dögum. | |
| 10:01 | Séu að sökkva og landlæknir hótað að stöðva starfsemina 88 Embætti landlæknis setti SÁÁ úrslitakosti í síðustu viku og tilkynnti að ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur virkum dögum þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi. Til að forðast þetta þyrfti sérfræðilæknir að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni fyrir klukkan 16 síðasta mánudag. | |
| 07:30 | Skipuleggur eigin jarðarför 100 „Mig langar bara að minna fólk á að finna það fallega í litlu hlutunum,“ segir Dagný Ósk Vestmann aðspurð hvað henni sé ofarlega í huga á átakanlegum tímamótum. Hún er þrjátíu og átta ára gömul tveggja barna móðir og stendur frammi fyrir því að eiga einungis nokkrar vikur ólifaðar. Í stað þess að skipuleggja næsta barna- eða brúðkaupsafmæli er hún að skipuleggja og safna fyrir eigin kistulagningu og útför. |
| 23:10 | Ekkert minnst á drónasamstarf í íslensku tilkynningunni 54 Ísland og Úkraína eru sögð vinna að samkomulagi um samstarf á sviði ómannaðra kerfa og þar á meðal dróna. | |
| 22:08 | Hafa sótt um að þrefalda stærð Stjórnarráðsins 92 Sótt hefur verið um leyfi til að reisa 1.685 fermetra skrifstofubyggingu við Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu. Fyrirhugað er að byggingin verði á tveimur hæðum auk kjallara og tengist austurhlið Stjórnarráðshússins með tengigangi. | |
| 20:44 | Claude við Einar Örn: Hver ert þú? 100 „Ég spurði Claude til gamans hvað Purrkur Pillnikk væri og þurfti að leiðrétta alls konar rangfærslur. Claude varð ægilega miður sín og baðst velvirðingar. Hafði líka orð á því að ég væri augljóslega með yfirburðaþekkingu á viðfangsefninu. Spurði svo: „Hver ertu?““ | |
| 20:42 | Inga Sæland heiðruð með gulluglunni 66 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fékk gullugluna, heiðursmerki Menntaskólans á Akureyri, þegar hún heimsótti skólann í gær. | |
| 17:17 | Skrifstofa lögmanna verði hótel 59 Lögmannafélag Íslands áformar að breyta skrifstofubyggingu félagsins í Álftamýri 9 í hótel eða gistiheimili. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í erindið, en þó með skilyrðum. | |
| 16:41 | Kjósa um slit félaga Pírata á sveitarstjórnarstigi 71 Tillagan verður tekin fyrir á aðalfundi Pírata. | |
| 16:28 | Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér 94 Tveir erlendir ríkisborgarar, karl og kona, hafa verið dæmdir í fimm og þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti. Við skýrslutökur breyttist framburður þeirra beggja iðulega en maðurinn sagði konuna hjákonu sína á meðan konan sagði þau ætla að gifta sig. | |
| 14:32 | Telur Icelandair með „loforð uppi í erminni“ 69 Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, telur að stjórnvöld muni grípa inn í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair áður en til verkfalls kemur þann 23. september næstkomandi. | |
| 10:34 | Árás sundþjálfara: Varð að leita á bráðamóttöku 63 Árás sundþjálfarans átti sér stað í fyrradag. | |
| 10:27 | Allir dómarar vanhæfir vegna ljósmóður á eftirlaunum 59 Allir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur verða að víkja sæti í skaðabótamáli sem kona hefur höfðað gegn ríkinu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms þessa efnis fyrir helgi.Konan krefst bóta vegna breytinga sem gerðar voru á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins 2016. Þessi lagabreyting gerði stjórn sjóðsins kleift að skerða lífeyrisréttindi félaga í A-deild 2023 vegna hækkandi lífaldurs og ákvörðunar um að miða réttindasöfnun félaga við væntan lífaldur.Kona sem var ljósmóðir um áratugaskeið og er komin á eftirlaun segir að með þessu hafi greiðslur sjóðsins til hennar lækkað um 9,9 prósent að meðaltali. Þetta vill hún að ríkið bæti sér. ALLIR Í SAMA SJÓÐI Skaðabótamál konunnar var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Allir dómararnir eiga það sameiginlegt með konunni sem ste |