| 18:02 | Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Það hefur vart farið fram hjá þeim sem fylgjast með opinberri umræðu hér á landi að samstillt átak virðist vera í gangi til að flæða yfir skoðanasíður miðlanna með fordæmingum á Ísrael. Færri virðast skrifa sem standa með Ísrael, en það er mikilvægt að fólk sem les þessar greinar fái upplýsingar frá þeim sem líta málið öðrum augum. | |
| 15:32 | KEMUR TÓLFAN? 100 Það er landsleikur gegn Eistlandi á morgun. Og við skulum ekkert vera að fegra stöðuna. Miðasalan er dræm. Spennan í kringum leikinn er lítil. Það hefur vantað neista. | |
| 15:30 | Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. | |
| 14:30 | Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þessi hópur er alltaf í kringum 30 prósent og býr við skilgreinda fátækt. | |
| 14:01 | Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Tækni gegnir sífellt stærra hlutverki á vinnustöðum. Hún er m.a. nýtt til að halda utan um laun, vinnutíma, vaktir og verkefni og hefur þannig bein áhrif á daglegt starf og kjör fólks. Með aukinni sjálfvirkni og gervigreind hefur hlutverk tækninnar enn meiri áhrif á stjórnun fyrirtækja. Tæknin er mikilvægt verkfæri en hún er eftir sem áður bara það: verkfæri. | |
| 13:30 | Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Í viðtali á Vísi í byrjun mánaðarins benti Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi hjá Strategíu, á staðreynd sem íslensk fyrirtæki verða að taka alvarlega. Gervigreindin er orðin milliliður milli neytenda og verslunar. Hún les vöruupplýsingar, ber þær saman og mælir með sumum vörum umfram aðrar. Varan sem gervigreindin skilur ekki kemst einfaldlega ekki á blað. | |
| 12:32 | Fólkið á bak við öruggt flug 50 Undanfarið hefur mikið verið rætt um kjaradeilu flugvirkja og Icelandair. Þar sem sambýlismaður minn er flugvirki stendur þessi umræða mér nærri og mig langar því að deila mínu sjónarhorni. Sérstaklega vegna þess að mér finnst umræðan á köflum hafa orðið þannig að deilan snúist fyrst og fremst um „græðgi“ flugvirkja og kröfur þeirra um verulegar launahækkanir. | |
| 12:01 | Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Fátt hefur verið meira rætt í efnahagsumræðunni undanfarið en fjölgun starfa hjá hinu opinbera. Tölurnar hafa verið notaðar sem vísbending um að ríkið sé að þenjast út og að opinberi geirinn keppi um vinnuafl við atvinnulífið. | |
| 11:30 | Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Viðtal á Sprengisandi 15. mars síðastliðinn vakti mig til umhugsunar. Þar ræddu þeir Tryggvi Þorgeirsson, læknir og stofnandi Sidekick Health, og Davíð Ottó Arnar, yfirlæknir á Landspítala, um stöðu heilbrigðiskerfisins og þau tækifæri sem felast í stafrænni þróun. | |
| 11:02 | Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Það getur stundum verið pínu erfitt að vera grunnskólakennari. Eitt eru allir þeir hattar sem maður þarf að bera á einum degi, þannig að manni líður stundum eins og segir í kvæðinu Löngum var ég læknir minn. Annað er að þurfa að útbúa nær allt námsefni, matskvarða og svo mætti lengi telja. Ég vil þó ekki kvarta undan því, enda er þetta starfsvettvangur sem ég hef valið mér og kann vel við. | |
| 10:33 | Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Að Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem hefur í áratugi þjónað íslensku þjóðinni. Þangað kemur fólk eftir veikindi, slys og önnur áföll til að byggja upp heilsu sína, færni og sjálfsbjargargetu og ná aftur fótfestu í lífinu. Á hverju ári njóta á annað þúsund manns endurhæfingar á Reykjalundi. | |
| 10:00 | Að ganga út eða ganga inn Í gær sá ég frétt frá allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem sat í mér. Tugir sendifulltrúa gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, steig í pontu. Sumir bauluðu, og Netanjahú svaraði með hörðum orðum og kallaði þá sem gengu út „siðlausa heigla“. | |
| 08:32 | Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Geðrækt á vinnustað þarf ekki alltaf að byrja á fræðslu um geðheilsu. Stundum byrjar hún einfaldlega á því hvernig yfirmaður bregst við þegar starfsmaður segir: „Ég klúðraði þessu.“ | |
| 08:20 | Sókn til fortíðar – Að viðhalda óbreyttu ástandi í sveitum Þegar stúlkur fara að ganga í buxum á sunnudögum þá fer illa, sagði Jóhann Bogesen. Og hafði áhyggjur hvernig færi fyrir þjóðinni vegna slíkra framfara | |
| 08:01 | Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Þessa dagana er vakin sérstök athygli víða um heim á táknmálum, heyrnarlausum, heyrnarskertum og fólki með samþætta sjón-og heyrnarskerðingu.. Hér heima gefst því gott tilefni til að staldra við og spyrja: Hvernig stendur íslenskt táknmál í raun og veru í dag? Hvað hefur gerst á undanförnum árum og hvert stefnum við? | |
| 07:30 | Af indíánum og kúrekum 50 Höfundur er alin upp í stórum systkinahópi, meira að segja á þeirra tíma mælikvarða, sjö vorum við krakkarnir sem ólumst upp á sveitabæ nokkrum í Hrútafirði.Við vorum þrjár systur og fjórir bræður, hvorug systranna næst mér í aldri, heldur bræður mínir, þremur og fimm árum eldri. | |
| 07:10 | Heimsækir ekki hvern sem er Atvinnuvegaráðherra vildi ekki kynna sér rekstur stórra fyrirtækja í Eyjafirði. | |
| 06:00 | Nína Richter skrifar: Menningarsnauðar alætur á tónlist |
| 23:31 | Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Hafi einhver hugsað sér gott til glóðarinnar núna í lok sumars og að von sé á góðum tölum frá Icelandair er rétt að skoða stöðu félagsins vandlega. Vangaveltur eru uppi um gjaldþrot, hver eigi félagið raunverulega og hvert stefni. | |
| 23:00 | Áskorun til heilbrigðisráðherra „Deilurnar innan SÁÁ hafa verið hatrammar og að mörgu leyti illskiljanlegar.“ Svo segir í frétt á vef RÚV um viðtal við heilbrigðisráðherra um þær áskoranir sem heilbrigðisþjónusta SÁÁ hefur staðið frammi fyrir undanfarnar vikur. | |
| 22:30 | Samræðusiðfræði og sálgæsla Ég er nýkomin af málþingi heimspekistofnunar um nýja bók Vilhjálms Árnasonar; Samræðusiðfræði. Þar voru tvö stutt erindi um bókina og spurningar settar fram sem Vilhjálmur svo svaraði. Annað erindið vakti sérstaka athygli mína en það var eftir Ástríði Stefánsdóttur lækni og lífsiðfræðing. | |
| 22:00 | Þegar landsframleiðsla dugar ekki Hvernig Ísland getur styrkt norræna velferðarmódelið áður en næsta auðlindabylting hefst | |
| 18:02 | Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Í grein sinni á Vísi þann 22. september, undir heitinu « er afleiðingin orsök?", tekst Hjálmtý Heiðdal, formanni Félagsins Ísland-Palestína, að draga upp einstaklega einfaldaða mynd af einu flóknasta deilumáli samtímans. | |
| 16:15 | Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Það fer ekki fram hjá þeim foreldrum sem hafa börn í íþróttum að sjálfboðavinna skiptir gríðarlegu máli fyrir starfsemi íþróttafélaga. Sjálfboðavinna foreldra og aðstandenda iðkanda er lífæð fyrir íþróttastarfið. Við borgum æfingagjöld, sem hafa hækkað töluvert síðustu misseri og mörg okkar sinnum sjálfboðavinnu á þeim mælikvarða að ótrúlegt sé að eina greiðslan sé að íþróttastarfið gangi smurt fyrir sig. Aðstandendur og iðkendur sem nú æfa í Egilshöll í eigu Heima fasteignafélags, þurfa nú að greiða fyrir bílastæði. Stjórnir deilda sem leigja aðstöðu af Heimum hafa reynt eftir fremsta megni að koma áhyggjum sínum um þetta fyrirkomulag á framfæri. | |
| 16:01 | Sleggjan fundin Lengi skiptust gæði Íslands á milli þeirra sem áttu útgerð og jarðir. Árið 1900 voru 71% bænda leiguliðar. Alþýðan var í fjötrum valdsins. Þeirra sem áttu. | |
| 15:46 | Að vaxa út úr vandanum Margt bendir til þess að við séum á leið í kreppu undir oki verðbólgu og hárra vaxta. Stýrivextir eru komnir í 8%, verðbólgan hefur verið yfir 5% átta mánuði í röð og hagkerfið er farið að dragast saman. Atvinnuleysi eykst og raunverð húsnæðis hefur lækkað mánuðum saman. Seðlabankinn og ríkisstjórnin virðast með stefnu sinni vera að þvinga hagkerfið í samdrátt. Það mun koma samfélagi sem byggir á hagvexti í óefni. | |
| 15:15 | Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Tuttugu árum síðar er Ásbrú ekki lengur fyrst og fremst „gamla varnarsvæðið“. Þar eru nú nær 70 fyrirtæki, þúsundir manna eiga þar heimili og á svæðinu hefur byggst upp fjölbreytt samfélag menntunar, atvinnulífs, hátækni, íþrótta og menningar. | |
| 14:15 | Hvar er þjóðarsáttin? „Auðvitað kemur að því að framleiðnivöxtur fyrirtækja stendur ekki undir slíkum hækkunum og þau eru knúin til að velta þeim út í verðlagið.“ | |
| 10:33 | Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni 50 Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 er kynnt með þeim orðum að efla eigi háskólastigið. Í málaflokki háskóla og rannsóknastarfsemi eru 1.343 milljónir króna sérstaklega ætlaðar til eflingar háskólastigsins, en um leið er gerð 1.351,4 milljóna króna aðhaldskrafa á málaflokkinn. | |
| 10:01 | Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Í lok maí kynnti mennta- og barnamálaráðuneytið áform um breytingar á námsmati í grunnskólum og voru þau sett í umsagnarferli. Endanleg ákvörðun um innleiðinguna var síðan kynnt 7. ágúst, rétt áður en skólastarf hófst. Samkvæmt henni eiga nemendur í 10. bekk að útskrifast vorið 2027 með einkunnir í tölum í stað bókstafa. | |
| 09:32 | Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Í nánast þrjú ár hefur ríkisstjórn síonista í Ísrael framið þjóðarmorð á Gaza. Alþjóðalög eru brotin daglega af ógnargrimmum her ríkis síonista, með kerfisbundnum árásum á óbreytta borgara, vísvitandi og markvisst er skotið á börn. Þá er heilbrigðisstarfsfólk, hjálparstarfsmenn og blaðamenn drepin markvisst. Fólk er sprengt, skotið, brennt, limlest og beitt andlegum og líkamlegum pyntingum. | |
| 09:30 | Landsmenn, opnið veskið! Hvernig væri að ríkisstjórnin sýndi gott fordæmi og héldi hækkunum sínum í skefjum? | |
| 09:00 | SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Mér þykir mjög vænt um SÁÁ og þá starfsemi sem samtökin hafa byggt upp og leitt í gegnum áratugina, íslensku samfélagi til mikilla heilla. Ég ber mikla virðingu fyrir öllu því fólki sem hefur lagt þar hönd á plóg starfsfólki, stjórnendum, félagsmönnum, sjálfboðaliðum og almenningi sem hefur stutt starfsemina. | |
| 08:32 | Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Stöðugleiki krefst sameiginlegs átaks | |
| 07:29 | Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Þann 2. september voru liðin 50 ár frá því að Flugfélag Norðurlands hóf flugþjónustu fyrir Sirius-sleðahundasveitina á Grænlandi. Í dag sinnir Norlandair þessum mikilvægu verkefnum, en höfuðstöðvar félagsins eru sem kunnugt er á Akureyri. | |
| 07:03 | 21% þá – 2% nú Hvernig PISA-niðurstöðum ætli skóli skili þar sem: | |
| 06:31 | Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? Maður gæti stundum haldið, miðað við orðræðu ráðherra og stjórnarliða, að erlendir ferðamenn sem sækja landið heim komi hingað tómhentir, aki um vegina okkar, traðki á náttúrunni og skilji svo reikninginn eftir á eldhúsborði íslenskra skattgreiðenda. | |
| 06:00 | Þorsteinn Pálsson skrifar: Íslenskt sjónarhorn á Grænlandssamninginn 100 Grænlandssamningurinn er birtingarmynd nýs veruleika í alþjóðamálum. |
| 19:31 | Virðing er ekki veikleiki Það er gömul og dýrmæt hugsjón í íslensku samfélagi að við séum fyrst og fremst samferðafólk. Við getum verið ósammála um stjórnmál, trú, lífsgildi og hvernig best sé að byggja upp samfélagið, en þegar öllu er á botninn hvolft erum við nágrannar, vinir, samstarfsfólk og fjölskylda. | |
| 15:30 | Inga Sæland: Það verða allir að sitja við sama borð ólíkt því sem verið hefur Það er mikilvægt að fá kennara að borðinu þegar verið er að endurskoða og endurskipuleggja skólastarf. Kennarasamfélagið er almennt jákvætt í garð þeirra breytinga sem Inga Sæland er að beita sér fyrir. Nú er verið að innleiða einkunnagjöf í tölum og verður hún að fullu innleidd við útskrift 10. | |
| 15:03 | Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma 50 Í nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 er lagt til að endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna við íbúðarhúsnæði lækki úr 35% í 20%. | |
| 13:01 | Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? 50 Hvernig getum við skapað vinnustaði þar sem fólk upplifir að það skipti máli? Og af hverju ættum við yfirhöfuð að vera að hugsa um það? Er þetta kannski bara enn einn þátturinn sem við höfum bætt á sívaxandi verkefnalista stjórnenda, ofan á starfsánægju, vellíðan, sálrænt öryggi, tilgang og að tilheyra? | |
| 12:31 | Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? 100 Í þrjá áratugi hefur EES‑samningurinn verið kynntur sem lykillinn að innri markaði Evrópu, auknum viðskiptum og betri lífskjörum. Í dag blasir hins vegar við allt önnur mynd. Samningurinn hefur bundið Ísland við regluverk sem var aldrei samið fyrir land sem framleiðir nánast engin byggingarefni, rekur smátt fjármálakerfi og er sjálfbært í orku. | |
| 12:04 | Kona með spegil Fyrir síðustu Alþingiskosningar lyftu allir nema tveir fulltrúar stjórnmálaflokka upp fánum og sögðust vera andvígir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. | |
| 11:31 | Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? The indefinite strike by Icelandair’s aircraft mechanics recalls a central lesson from the EFTA Court’s 2014 Wow Air case (E‑18/14): in an island state, airports, slots and reliable air services are not ordinary market parameters. | |
| 11:02 | Haust til hægri 50 Haustlitirnir eru fallegir. Trén skarta gulu og rauðu og við stöldrum við til að njóta þeirra. Samt vitum við hvað þeir boða. Gróðurinn er að leggjast í dvala og fram undan er kaldur vetur. | |
| 11:01 | Þegar forstjórinn talar eins og ársskýrsla Markviss fjölmiðlaþjálfun hjálpar fólki að finna kjarnann, tala skýrt og bregðast yfirvegað við. | |
| 10:52 | Bréf frá útgefanda: Um 300 manna hópur fremur skemmdarverk á íslenskum hagsmunum | |
| 10:02 | Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Um síðustu helgi fjallaði fréttastofa RÚV um þær miklu breytingar sem verða á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum um komandi áramót. Frá 1. janúar 2027 flytjast verkefni sem sveitarfélög hafa sinnt í áratugi yfir til ríkisins. | |
| 10:00 | Þorvaldur Ingi Jónsson: Lífsrækt – hvernig er „þorpið“ að ala upp barnið? Það er sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. En hvernig lítur þorpið út í dag? Hverjir móta sjálfsmynd barna okkar, sjálfstraust þeirra, gildi og sýn á lífið? Erum við sjálf nægilega meðvituð um hvaða veganesti við gefum næstu kynslóð? | |
| 09:30 | Það sem ekki sést í Excel-skjali Fjármálaráð gegnir mikilvægu hlutverki við yfirferð fjármála ríkisins. Það leggur meðal annars mat á fjármálastefnu stjórnvalda með sjálfbærni og stöðugleika opinberra fjármála að leiðarljósi. Það er því eðlilegt að taka ábendingar ráðsins alvarlega. | |
| 09:00 | Hver sat við borðið? 50 Samráð er fallegt orð sem er mikið notað um þessar mundir en hvað þýðir það að viðhafa raunverulegt samráð? Samkvæmt lögum er skylda að hafa samráð við fatlað fólk þegar fjallað er um þeirra málefni. Í því samhengi er ekki nóg að spyrja fatlað fólk hvað því finnist þegar tillögur um þeirra réttindi eru nánast tilbúnar, en slík vinnubrögð eru því miður allt of algeng. Til þess að samráð skili árangri þarf fatlað fólk að geta haft áhrif á það sem verið er að móta en ekki eingöngu fengið að gera athugasemdir við niðurstöðuna. | |
| 09:00 | Kína er stór heimsmarkaður Ég vil nota þetta tækifæri sem sendiherra Kína á Íslandi til að hvetja íslensk fyrirtæki til að nýta vel möguleika sína til að auka viðskipti sín við Kína. | |
| 08:47 | Núll sem heldur Við í Húnaþingi vestra stöndum vörð um okkar íbúa og hækkum hvorki gjaldskrár né fasteignagjöld á næsta ári. Leikskólagjöld standa í stað. Hitaveitan. Tónlistarskólinn. Allt. | |
| 08:31 | Grindavík var ekki svartur svanur Í umræðunni um eldgosin við Grindavík hefur því verið haldið fram að atburðarásin sé dæmi um svartan svan. | |
| 08:03 | Stóra samhengið sem gleymdist Það skýtur skökku við að lesa umfjöllun Morgunblaðsins og Viðskiptablaðsins að undanförnu um meintan niðurskurð í samgöngumálum. | |
| 07:47 | Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) sýnir að hraður vöxtur í tækni- og hugverkaiðnaði hefur ekki aðeins skapað mikil útflutningsverðmæti heldur jafnframt stuðlað að auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi. | |
| 07:30 | Áfall á bíllausa daginn Nýjar tölur um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi minna okkur á að við eigum enn langt í land með að ná loftslagsmarkmiðum okkar. |
| 23:30 | Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Fagráð Félagsráðgjafafélags Íslands um áfengis- og annan vímuefnavanda sendi Önnu Hildi Guðmundsdóttur formanni SÁÁ og Baldvinu Ýr Hafsteinsdóttur forstjóra SÁÁ bréf í dag og lýsti yfir alvarlegum áhyggjum af stöðu meðferðarþjónustu SÁÁ og þeim afleiðingum sem röskun á starfseminni getur haft fyrir fólk með vímuefnaröskun og aðstandendur þess. Fagráðið vil undirstrika að það er á ábyrgð bæði stjórnar og fagfólks SÁÁ og stjórnvalda að koma í veg fyrir þjónusturof í þjónustunni. | |
| 19:32 | Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Það er kominn tími til að spyrja spurninga sem mér finnst hafa týnst í umræðunni um SÁÁ: | |
| 19:30 | Að kaupa heysátuna frekar en að leita að nálinni „Með öðrum orðum: í stað þess að leita að nálinni getur verið skynsamlegra að eiga heysátuna.“ | |
| 19:30 | Hvar er þjóðarsáttin? „Auðvitað kemur að því að framleiðnivöxtur fyrirtækja stendur ekki undir slíkum hækkunum og þau eru knúin til að velta þeim út í verðlagið.“ | |
| 19:30 | Horfum til himins en gleymum ekki verðinu „Þessi samanburður hefur varla verið jafn óhagstæður fyrir hlutabréf frá aldamótum.“ | |
| 19:30 | Lognmollan yfir hlutabréfamarkaðnum Því miður virðist fjárfestahópurinn á íslenskum hlutabréfamarkaði stefna í átt að æ meiri einsleitni þar sem lífeyrissjóðir gnæfa yfir aðra. | |
| 19:30 | Varar við "barni síns tíma" Ríkisstjórnin hlustar ekki á Gylfa Magnússon frekar en aðra þá sem vara við hækkun bankaskattsins. | |
| 19:30 | Sundurleit hjörð leitar að forseta Enn sem komið er hefur aðeins einn frambjóðandi lýst yfir áhuga á að gegna starfi forseta ASÍ. | |
| 19:30 | Heimsækir ekki hvern sem er Atvinnuvegaráðherra vildi ekki kynna sér rekstur stórra fyrirtækja í Eyjafirði. | |
| 19:30 | Vér gerviverktakar Baráttan um brauðið harðnar á þessu öðru „verðmætasköpunarhausti“ ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Á meðan fátt virðist geta stöðvað að flugvirkjar leggi niður störf og setji samgöngur og vöruflutninga til og frá landinu í algjört uppnám, svo ekki sé minnst á framtíðarhorfur Icelandair, er hundur í sendlum heimsendingarfyrirtækisins Wolt og þeir ósáttir við kaup sín og kjör | |
| 19:30 | Rós í hnappagat Samkeppniseftirlitsins Eigendur Volkswagen og Skoda í ævarandi þakkarskuld við Pál Gunnar Pálsson. | |
| 19:30 | Blóðtakan í stjórnarráðinu „Vinnubrögð Hrafnkels eru mikil vonbrigði og vonar Óðinn að þau séu ekki dæmigerð fyrir þá sem starfa í íslenskri stjórnsýslu.“ | |
| 17:02 | Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins 50 Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) sýnir að hraður vöxtur í tækni- og hugverkaiðnaði hefur ekki aðeins skapað mikil útflutningsverðmæti heldur jafnframt stuðlað að auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Greinin er orðin ein af fjórum meginstoðum útflutnings á Íslandi og stóð árið 2025 undir nær fimmtungi útflutningstekna þjóðarbúsins. Ávinningurinn nær því langt út fyrir fyrirtækin sjálf: sterkari tækni- og hugverkaiðnaður eflir undirstöður hagkerfisins og skapar forsendur fyrir betri lífskjörum landsmanna. | |
| 16:31 | Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Umræða um hvalveiðar hefur aftur færst inn á Alþingi í kjölfar þess að boðað hefur verið að lög um hvalveiðar verði tekin til endurskoðunar. Það er eðlilegt að þingmenn hafi ólíkar skoðanir á málinu. En þegar rætt er um framtíð hvalveiða á löggjafarþinginu verður að gera þá kröfu að umræðan byggist á staðreyndum. | |
| 15:30 | Inga Sæland: Símabannið breytir öllu – börnin verða ánægðari og læra betur Í Finnlandi breytti símabann í skólum öllu á mettíma. Börnin eru glaðari og námsárangur betri. Það er mikið að gerast í menntamálunum á vakt Ingu Sæland og meðal annars er það símabann. Hún og Logi Einarsson, háskólaráðherra, ætla m.a. að leggjast yfir kennaranámið. Það er allt að gerast. | |
| 14:43 | Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Eyðsla eða fjárfesting Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Er fjármunum sem varið er til velferðar og geðheilbrigðismála óþarfa eyðsla eða fjárfesting? | |
| 14:01 | Verður Vogi lokað? Áfengis- og fíknimeðferðir á vegum SÁÁ eru í uppnámi eftir að sviptingar urðu nýlega í stjórnendahópi fagfólks samtakanna í kjölfar uppsagnar forstjóra SÁÁ. | |
| 09:16 | Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina 50 Hljóðlátt en eldsnöggt rafmagnskrossarahjól þýtur fram hjá á göngustíg í borginni. | |
| 08:31 | Uppsagnir í Stjórnarráðinu 50 Nýlegar uppsagnir í ráðuneytum senda skilaboð um að stjórnvöld séu ábyrg og hiki ekki við að ganga á undan með góðu fordæmi þegar þau boða víðtækar aðhaldsaðgerðir. | |
| 06:00 | Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? 100 Ég hef fylgst með íslenskum vinnumarkaði frá ýmsum hliðum í áratugi, m.a. setið í samninganefndum fyrir Vinnuveitendasamband Íslands og síðar Samtök atvinnulífsins, auk þess að hafa tekið þátt í rekstri fyrirtækja og setið í stjórnum félaga og samtaka. |
| 21:00 | Hinn háskalegi hugsunarháttur Eins og margoft hefur verið bent á ríkir sú sérstaða meðal íslensku þjóðarinnar, að fólk þar metur allt sem tengist fjármálum á jafnvægisvog verðtryggingar. Öll útgjöld, allur rekstur, öll töp og allur fjárhagslegur gróði er metinn á þessa sömu og einföldu vog. Nú er verðtryggingamælistikan sögð vera 5,4% - þ.e. mælikvarði yfirstandandi verðbólgu á Íslandi. Bankavextir munu víst vera orðnir 8%. Svo hljóða þeir vextir, sem bankar taka af viðskiptavinum sínum sem eru lánsþurfi. Gróði bankanna af lánastarfsemi sinni er svo talinn samsvara röskum fjórðungi af 8% heildarvaxtaálögum þeirra. Á þann gróða leggur ríkisvaldið nú bankaskatt. | |
| 17:30 | Inga Sæland: Eldra fólk er ekki „fráflæðisvandi“ Inga Sæland óskaði eftir því að uppbygging hjúkrunarheimila fylgdi henni yfir í menntamálaráðuneytið vegna þess að annars hefði töf komið á það mál. Henni geðjast ekki að því að talað sé um eldra fólk sem „fráflæðisvanda“. | |
| 15:30 | Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Í dag, 21. september er alþjóðadagur friðarmenningar á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þema dagsins felst í því að temja sér friðsamlegt hugarfar og æfa sættir. Hugsum um orðið sátt. Samfélagið þarf að leggja rækt við þær hugsjónir sem fela í sér kærleika, virðingu, einlæg samskipti og skuldbindingu við aðra. | |
| 14:30 | Orðið á götunni: „Ég á þetta strætóskýli!” – Ungir sjálfstæðismenn krefjast valda fyrir flokkinn Nenni níski er ein af skemmtilegu persónunum í Latabæ en hann reynir að helga sér allt sem í kringum hann er. Hjá honum snýst lífið um að eiga allt og meina öðrum aðgengi. | |
| 14:00 | 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Það er sjálfsagt, eðlilegt og mikilvægt að ræða skipulag og skilvirkni í grunnskólum. En til að upplýsa Viðskiptaráð Íslands verður líka að ræða það sem kennarastarfið felur í sér. | |
| 13:31 | Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Niðurstöður síðustu PISA könnunar hafa vakið nokkra umræðu og áhyggjur vegna hrakandi frammistöðu barna í íslenskum skólum í stærðfræði, lestri og náttúruvísindum. Frammistaðan hefur líka versnað í nágrannalöndunum en af Norðurlöndunum er staðan samt langverst á Íslandi. | |
| 13:02 | Heilbrigð skynsemi 100 Um næstu áramót verða miklar kerfis breytingar á heilbrigðis- og matvælaeftirliti hér á landi. Verkefni sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hafa sinnt færast að stórum hluta til ríkisins, meðal annars til nýrrar Stofnunar atvinnuveganna. | |
| 12:32 | Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Fyrir tæpu ári skrifaði ég hér á Vísi um þá ákvörðun stjórnvalda að afnema heimild hjóna og sambúðarfólks til samnýtingar skattþrepa. Ég gagnrýndi þá meðal annars þann málflutning að hér væri einfaldlega um sérstaka skattaívilnun fyrir tekjuhæsta fólk landsins að ræða. | |
| 12:00 | Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Það gerist ekki oft að leiðtogar fremstu gervigreindarfyrirtækja heims, virtir vísindamenn og stjórnmálamenn frá hægri og vinstri stígi fram nánast samtímis og segi: Við þurfum að hægja á. | |
| 08:31 | Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Pólsk stjórnvöld hafa nú tryggt skólabörnum aðgang að máltíðum sem eru alfarið úr jurtaríkinu. | |
| 08:02 | Hún þekkir mig með hjartanu 100 Í dag 21. september er alþjóðlegur dagur Alzheimer. Sjúkdómur sem ég þekki orðið vel til, en elsku mamma greindist með hann árið 2021. Eins og algengt er get ég þó spólað nokkuð mörg ár aftur í tímann og áttað mig á einkennum. | |
| 07:31 | Hvalveiðum er lokið... í bili Hvalveiðum þessa árs er lokið. Skipin eru komin í höfn, vertíðin búin, og eftir situr sú staðreynd að 93 langreyðar voru felld á 94 dögum. En talan ein og sér fangar ekki raunveruleikann sem á sér stað úti á sjó. | |
| 07:00 | Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Í síðustu viku fjallaði ég hér á Skoðunum á Vísi um Áfram Ísland og tengsl félagsins við auglýsingastofuna Pipar\TBWA í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst sl. |
| 22:13 | Parkour skúrinn - Síðasta vígið Hefur þig aldrei langað að hverfa aftur til fortíðar, þar sem þér var frjálst að leika þér, klifra, stökkva og eins enginn væri morgundagurinn? Nú eða bjóða börnunum þínum upp á slíkt hið sama. | |
| 20:03 | Þú, ég og dildóinn Nokkuð hefur borið á umræðu í samfélaginu undanfarið þar sem fólk veltir fyrir sér hvort að það sé framhjáhald ef makinn stundar sjálfsfróun með kynlífstæki. | |
| 18:00 | SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Eitt er það sem blasir við varðandi núverandi stöðu og það er hvernig stjórn félagsins umgengst gagnsæi. | |
| 17:30 | Sheeran og Gaza „Þessir tónleikar eru enn staður þar sem allir eru velkomnir og geta staðið við hlið þeirra sem hafa andstæðar skoðanir.“ | |
| 17:05 | Daði sterki Fæstir deila þeirri staðföstu trú Daða fjármálaráðherra og Kristrúnar forsætisráðherra að frumvarp til fjárlaga næsta árs nái markmiðum sínum. | |
| 17:03 | Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Umræðan um verðbólgu og hátt vaxtastig hefur ekki farið framhjá neinum undanfarnar vikur og mánuði. Þetta er í raun óboðleg staða fyrir bæði fólk og fyrirtæki og við viljum öll sjá trúverðugar aðgerðir stjórnvalda til að vinda ofan af ástandinu og vinna að raunverulegum árangri. | |
| 16:32 | Lestur er meira en ein aðferð Hvað er að kunna að lesa? | |
| 16:30 | Orðið á götunni: Landsvirkjun sjái um vindmyllur – ekki kúrekarnir og labbakútarnir Nú eru allir og mögulega ömmur þeirra líka á fullu við að undirbúa vindmyllugarða á Íslandi. Það er skiljanlegt. Vindurinn er nokkuð sem við Íslendingar eigum nóg af og hann er mikilvægur orkugjafi á móti vatns- og varmaorku. | |
| 16:00 | Hver skilgreinir svarið? Í upphafi árs kallaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra eftir samstöðu og varaði við sundrungu og „svartagallsrausi“. Slík orðræða vekur þó spurningu sem skiptir máli í lýðræðislegri umræðu: Hver ákveður hvað telst samstaða og hvað sundrung? Hvenær er gagnrýni málefnaleg og hvenær verður hún að svartagallsrausi? Hver skilgreinir það – og á hvaða forsendum? | |
| 15:12 | Að laga Ísland að umbúðunum Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar var fyrirferðarmikið í fjölmiðlum í síðustu viku og togstreitan á milli hins efnahagslega veruleika og umbúða fjárlaganna í brennidepli. | |
| 15:00 | Björn Jón skrifar: Atvinnumennskan er meinsemd stjórnmálanna | |
| 13:30 | Inga Sæland: Stjórnarandstaðan hefur enga tilfinningu fyrir einu eða neinu og veður í villu og svima Síðasta ríkisstjórn jók ríkisskuldir um 866 milljarða á sjö árum og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fékk þá skuldasöfnun í fangið. Samstaðan í þessari ríkisstjórn er órofa og ef flokkarnir eru ekki sammála um eitthvert mál setjast valkyrjurnar niður og ræða málin til lausnar. | |
| 13:18 | Nýjar leiðbeiningar um misnotkun á markaðsráðandi stöðu „Í öllu falli er fullt tilefni fyrir fyrirtæki sem kunna að hafa markaðsráðandi stöðu á tilgreindum mörkuðum að kynna sér leiðbeiningarnar og taka mið af þeim í sinni starfsemi.“ | |
| 10:32 | Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar markar þáttaskil í umræðunni um framtíð íslensks peningakerfis. Meirihluti kjósenda hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju og upptaka evru er því ekki raunhæfur kostur í fyrirsjáanlegri framtíð. | |
| 09:17 | Geymdu fröllurnar þínar Listaelítan finnur útgáfu barnabókar um fjármálalæsi allt til foráttu. | |
| 08:31 | Grænlandssamningurinn Trump, forseti Bandaríkjanna hefur lýst yfir sigri í yfirtöku á Grænlandi. Öryggismál Grænlands eru á forræði Bandaríkjanna um aldur og ævi. Enginn utanaðkomandi, les Kina og Rússland geta athafnað sig á norðurslóðum Grænlands. | |
| 08:14 | Neðanmáls: Hallarlausar skattahækkanir Fjárlögin og áhrif þeirra eru viðfangsefni Halldórs Baldurssonar þessa vikuna. | |
| 08:03 | Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Óvissa 76 heilbrigðisfulltrúa er orðin að uppsögnum án þess að störf og fjármagn hjá ríkinu séu trygg. | |
| 08:00 | Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að elska vindmyllur 100 | |
| 07:30 | Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Deilan sem hefur skekið SÁÁ er ekki fyrsta dæmið um að Valgerður Rúnarsdóttir bregðist við ákvörðunum stjórnar samtakanna með uppsögn, opinberri gagnrýni og þrýstingi á að ákvarðanir verði dregnar til baka. |
| 17:22 | Umbúðir og árangursleysi Kristrúnu tókst líkt og Clinton að skrifa núll á pappaspjald. Þar lýkur samanburðinum. | |
| 14:30 | Inga Sæland: Flokkur fólksins skuldar elítunni ekki neitt – hann vinnur fyrir fátæka fólkið Þangað til útborgaðar bætur til þeirra sem lakast hafa það, öryrkja og aldraðra, ná 450.000 krónum verður borgaður út jólabónus til þessara hópa. Í fyrra nam hann 74.000 krónum. | |
| 13:30 | Sigmundur Ernir skrifar: Þótt við eigum Ísland, góða þjóð, erum við engir asnar! | |
| 13:19 | Lengi getur vont versnað – dýr misnotkun á markaðsráðandi stöðu „Þegar rannsókn samkeppnisyfirvalda spannar mörg ár getur þessi munur skipt sköpum og vekur upp þá grundvallarspurningu hvenær tjónþoli eigi að hafa uppi skaðabótakröfu sína hérlendis.“ | |
| 12:02 | Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Það er mikið rætt um stuðning ríkisins við einkarekna fjölmiðla. Orðið fjölmiðlastyrkir gefur auðveldlega þá mynd að þar sé um að ræða almennt stuðningskerfi við íslenska einkarekna fjölmiðlun. | |
| 11:31 | Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Framtíð heilsu okkar ræðst ekki aðeins af því hversu lengi við lifum, heldur hversu mörg ár við lifum við góða heilsu og færni. Stóru sigrarnir felast oft í litlum ákvörðunum sem teknar eru aftur og aftur. | |
| 11:03 | Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Sem afskekkt eyríki í Norður-Atlandshafi er Ísland óhjákvæmilega háð flugsamgöngum. Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð, brúin sem tengir samfélag okkar og atvinnulíf við umheiminn. Þeir sem búa yfir valdi til að teppa þessa lífæð fara því með mikil völd. | |
| 10:32 | Allt landið eitt kjördæmi 100 Starfshópur dómsmálaráðherra leggur til verulegar breytingar á íslenska kosningakerfinu til að jafna vægi atkvæða eftir búsetu. Tillögurnar fela í sér að jöfnunarsætum fjölgi mikið án þess að þingmönnum fjölgi og sæti færist milli kjördæma í samræmi við fjölda kjósenda. Suðvesturkjördæmi, Kraginn, fengi samkvæmt tillögunum 18 þingmenn. | |
| 10:01 | Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír 100 Ekki heldur í uppþvottalegi, málningu, skrifstofuhúsgögnum, prentpappír, hreinsiefnum eða öllum þeim ótal vörum og þjónustu sem við kaupum á hverjum degi. Og það er kannski bara ágætt. | |
| 08:32 | Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ 100 Forstjóri SÁÁ sagði upp störfum þann 6. ágúst. Hún sætti sig ekki við áherslur stjórnar SÁÁ um forgangsröðun og nýjar áherslur í þjónustu samtakanna. Né heldur sætti hún sig við afskipti stjórnar SÁÁ af innleiðingu samnings við Sjúkratryggingar Íslands. | |
| 08:15 | Hernaður Viðreisnar gegn atvinnulífinu 100 Viðreisn setur alla orku í hitt áhugamál sitt að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. | |
| 08:00 | Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Ég þekki ákveðna tegund af pirringi úr umferðinni. Ég sit á akrein sem virðist varla hreyfast á meðan bílarnir við hliðina á mér renna fram hjá, hver á fætur öðrum. Fyrst tek ég varla eftir því, en svo fer ég ósjálfrátt að telja þá, fimm bílar, svo tíu og jafnvel bíllinn sem var langt fyrir aftan mig er allt í einu kominn fram úr. | |
| 08:00 | Er Ísland umsóknarríki? Í umræðu um stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu er mikilvægt að gera greinarmun á stöðu umsóknarríkis (e. applicant) og inngönguríkis (e. candidate). Með umsóknarríki er átt við ríki sem hefur lagt fram gilda umsókn um aðild. | |
| 07:46 | Sagan frá hinni hliðinni Um ást, fíkn, mörk og augnablikið þegar maður áttar sig á því að maður getur ekki bjargað annarri manneskju – en getur enn bjargað sjálfum sér. Lengi vel velti ég því fyrir mér hvort ég hefði rétt á að tala opinberlega um þetta. Í dag veit ég að mig langar að tala. | |
| 07:32 | Ég er kominn heim - eða hvað? „Ég fæ engin svör frá félagsþjónustunni, hef gist á sófum hjá vinum í átta mánuði núna og er orðin örmagna!” „Ég fékk loksins félagslega íbúð en ég kemst ekki með hjólastólinn inn á klósett”. | |
| 07:01 | Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins 100 Umræðan um Wolt-sendla, verktakavinnu og svokallað gigg-hagkerfi á Íslandi einkennist oft af einföldunum og fullyrðingum sem eiga sér litla stoð í raunveruleikanum. Á samfélagsmiðlum og í athugasemdakerfum heyrist því oft haldið fram að sendlar greiði enga skatta, starfi án tilstilli laga eða leigi kennitölur af öðrum. Þegar staldrað er við og rýnt í umhverfið kemur í ljós mun flóknari mynd. | |
| 07:01 | Halldór 19.09.2026 Mynd dagsins eftir Halldór Baldursson. | |
| 07:00 | Skattar óvenjulega fólksins Á blaðamannafundi við myndum ríkisstjórnarinnar í desember 2024 sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: „Við ætlum ekki að hækka tekjuskatta á fólk, við ætlum ekki að hækka skatta á lögaðila, við ætlum ekki að hækka fjármagnstekjuskatt og við ætlum ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu.“ | |
| 06:00 | Óttar Guðmundsson skrifar: Meðferðarfíkn |