Í nýlegri grein sinni, „Engin venjuleg verslun“, svarar Arnar Sigurðsson grein minni „Áfengi er engin venjuleg neysluvara“. Ég fagna málefnalegri umræðu um áfengismál og þakka Arnari fyrir að taka sér tíma til að lesa grein mína og svara henni. Við erum sammála um ýmis grundvallaratriði, meðal annars að áfengi geti valdið alvarlegum skaða og að forvarnir, meðferð og stuðningur séu mikilvægir þættir í að draga úr þeim skaða.