Af skyn­semi og óskynsemi

Að deila við skynsemina er vandasamt, enda andstæða hennar óskynsemin sjálf. Skynsemin þarf þó á óskynseminni að halda til að geta skilgreint sjálfa sig; ekkert getur talist skynsamt nema hið óskynsamlega sé nú þegar til staðar. Franski heimspekingurinn Michel Foucault fjallaði í bók sinni Sturlun og óskynsemi. Saga sturlunar á skynsemisöld um samband skynsemi og óskynsemi og hvernig mörk þeirra mótast í sögulegu samhengi. Tvíhyggjuparið er í eins konar dansi, þar sem annað þarf á hinu að halda og hreyfingar þeirra afmarkast af sögunni.
Af skyn­semi og óskynsemi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar