Nemandi minn skilaði stuttu ritunarverkefni í Moodle og fékk nær samstundis einkunnina átta og endurgjöf á verkefnið. Matið kom frá gervigreind sem er tengd námsumsjónarkerfi og vinnur eftir fyrirmælum og matsviðmiðum sem ég hafði útbúið. Nemandinn var ósammála einkunninni og færði rök fyrir því að svarið ætti að fá níu.