Ég veit ekki hversu oft ég hef hlustað á íslenska stjórnmálamenn tala um mikilvægi þess að einfalda regluverk fyrir fyrirtækin í landinu. Þennan söng hafa stjórnmálamenn í öllum flokkum sungið. Allir hafa þeir lýst háleitum markmiðum um einföldun regluverks, sérstaklega fyrir kosningar.