Það er kominn tími til að Icelandair hefji beint áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Þróun síðustu ára hefur styrkt rökin fyrir þeirri leið: easyJet hefur fest sig í sessi með flugi frá London og Manchester, innviðir Akureyrarflugvallar hafa verið efldir og minni Airbus-vélar eru á leið í flota Icelandair.