Á meðan kerfin rífast um verk­lag er far­sæld barnanna okkar í húfi

Síðastliðið sumar kom út stjórnsýsluúttekt á innleiðingu og framkvæmd laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Skýrslan hefur fengið viðurnefnið ”svört skýrsla Ríkisendurskoðunar” á innleiðingu farsældarlaganna. Á sama tíma og ég fagna úttektinni þá vakti efni hennar mig líka til umhugsunar. Sem deildarstjóri í leikskóla og þjónustuveitandi samkvæmt lögunum þá á innihald skýrslunnar mikið erindi til mín og ég upplifi í gegnum lestur hennar hversu breitt bilið er orðið á milli okkar sem störfum á gólfinu og þeirra sem taka ákvarðanir í kerfinu.
Á meðan kerfin rífast um verk­lag er far­sæld barnanna okkar í húfi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar