| 16:06 | „Þetta er svolítið illa tímasett hjá þeim“ 66 „Maður er búinn að vera alveg á fullu að reyna að fylla á og gera allt klárt og tilbúið fyrir jól. Núna er maður sleginn svolítið niður og maður verður bara að standa upp og finna einhverja leið til að halda áfram.“ | |
| 11:47 | Bæjarstjóri Kópavogs vill kalla eftir veikindavottorðum starfsfólks 72 Bæjarstjóri Kópavogs vill kalla eftir læknisvottorðum hjá starfsfólki sem er ítrekað frá vegna skammtímaveikinda. Mat trúnaðarlæknis gæti haft áhrif á greiðslu veikindalauna ef starfsmaður skilar ekki fullnægjandi vottorði. Árlegur veikindakostnaður Kópavogsbæjar er í kringum tveir milljarðar króna. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. | |
| 11:42 | Bíll borgarstjóra skemmdist og nýr tekinn á leigu 85 Bíll borgarstjóra Reykjavíkur varð fyrir tjóni í mars síðastliðnum og var í kjölfarið seldur. Sá var af gerðinni Hyundai Ioniq 5 en Audi Q7 3.0 hefur verið tekinn á rekstrarleigu á meðan kaup á nýjum borgarstjórabíl eru skoðuð. | |
| 10:20 | Afhendir ekki tölvupóstana 69 Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar neitar að afhenda Morgunblaðinu tölvupóstsamskiptin. | |
| 07:25 | „Maðurinn minn bara hvarf í sex klukkustundir“ 100 Íris Eik Ólafsdóttir er réttarfélagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og framkvæmdastjóri Samskiptamiðstöðvarinnar í Skeifunni. Hún og hennar fjölskyldumeðlimir nota staðsetningarappið Life 360 en ein kveikjan að því að þau hlóðu appinu niður var að maðurinn hennar, sem er lögmaður, hvarf einn daginn og hún náði ekki í hann í síma.„Hann hafði talað við einn svolítið svona æstan síbrotamann fyrr um morguninn sem hafði staðið í hótunum við hann, og ekkert mál, við erum bæði vön því að vinna í krefjandi umhverfi og maður hristir það bara af sér,“ útskýrir Íris Eik. GLÓRULAUSAR HUGSANIR Hún segist þó hafa orðið óróleg þegar ástandið dróst á langinn, „ætli þessi sé bara búinn að ræna honum, bara svona glórulausar hugsanir“.Þegar maðurinn hennar hringdi til baka eftir sex klukkustundir kom í ljós |
| 22:28 | Skemmdarverk unnin við MR: „Viva Verzló“ 87 Skemmdarverk voru unninn á íþróttahúsi Menntaskólans í Reykjavík um helgina. | |
| 19:16 | Taldi sig vera í leigubíl 92 Lögreglan hafði afskipti af óvelkomnum aðila. | |
| 15:48 | „Nú er Reykjavík að verða þekkt sem vændisborg“ 85 Markmið nýs vændisfrumvarps dómsmálaráðherra er ekki að dæma kaupendur vændis til fangelsisvistar, þar sem ráðherra sér það fyrir sér að slíkum brotum verði að jafnaði lokið með skilorðsbundnum fangelsisdómi, heldur að ítreka fælingarmátt og draga úr eftirspurn með því að nöfn kaupenda verði birt opinberlega. | |
| 14:28 | Kóki er ekki verkkvíðinn maður 100 „Ef þú hugsar alltaf um vandræði, þá lendirðu í vandræðum. En ef þú hugsar í lausnum, þá munu þær birtast. Það er heldur ekki gott að efast um ákvarðanir sínar. Fyrsta hugmyndin er yfirleitt sú besta.“ | |
| 14:13 | Kæmi ekki á óvart ef ráðherra segði af sér 97 Ritstjóri Viðskiptablaðsins segir að það kæmi sér ekki á óvart ef stjórn Landsvirkjunar eða fjármálaráðherra myndu segja af sér vegna Landsvirkjunarmálsins. Stjórnsýslufræðingur segir ráðherra hafa brotið lög með því að halda fund með stjórn fyrirtækisins. |
| 22:52 | Á gjörgæslunni brast bjartsýnin: „Dagbjört, þú kemur bara heim“ 87 Dagbjört Barringer Gunnarsdóttir og eiginmaður hennar höfðu staðið af sér hvert áfallið á fætur öðru þegar hann var lagður inn á gjörgæslu. | |
| 22:51 | Skrýtin lykt í fjölbýlishúsi í Hvassaleiti 87 Slökkviliðið var kallað út í kvöld. | |
| 20:31 | „Áfall að sjá hversu margir féllu í versluninni Zöru“ 100 „Við heyrðum hvelli. Fyrst datt manni í hug að þetta gætu verið flugeldar en svo var þetta svo hratt og reglulegt að það voru eiginlega allir sem áttuðu sig samstundis,“ segir Bjarni Vestmann, sem var ásamt eiginkonu sinni, Rakel Árnadóttur, á veitingastað á torginu þar sem árásarmaður hóf skothríð í Kraká í dag. Þau hjónin forðuðu sér inn á veitingastaðinn.„Þegar þetta var yfirstaðið og ég kom út aftur þá áttaði ég mig á því að þetta var ekki nema 50 metra frá því þar sem við sátum,“ segir Bjarni.Hann segir mildi að ekki fleiri skyldu hafa orðið fyrir skaða á torginu, sem er vinsæll og fjölmennur ferðamannastaður. „Að sama skapi var það áfall að sjá hversu margir féllu í versluninni Zöru.“ | |
| 11:55 | „Ég óttast að hjúkrunarfræðingar úti í heimi sjái sér ekki hag í því að koma til Íslands“ 75 Há skólagjöld á nemendur sem koma frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins gætu veikt heilbrigðiskerfið og minnkað gæði heilbrigðisþjónustu.Þetta segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh). Háskóli Íslands hefur birt yfirlit um skólagjöld sem nemendur sem koma utan EES verða að greiða til að stunda nám við skólann. Upphæðirnar nema frá 1,45 milljónum króna upp í 3,25 milljónir fyrir veturinn.„Maður hefur áhyggjur af því að það verði færri hjúkrunarfræðingar sem munu sjá hag sinn í því að koma til Íslands að starfa. Og síðan kannski ekki síður mikilvægt hefur maður áhyggjur af því að íslenskukunnátta verði lakari og minni við þessa breytingu hjá hjúkrunarfræðingum sem koma hingað til starfa,“ segir Helga. 700 ERLENDIR HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Erlendir hjúkr | |
| 10:45 | Hafa aðeins fengið 1,7% af fjármunum 81 „Ég verð að gangast við því að þetta var pínu áfall,“ segir Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. |
| 23:00 | Heimili Dagbjartar fuðraði upp eftir saklausa tilraun 95 Eldsvoðinn bættist í röð áfalla sem fjölskyldan varð fyrir og áttu þátt í þeirri ákvörðun að flytja heim til Íslands. | |
| 17:02 | Upptaka sýnir átökin sem leiddu til manndráps 73 Myndbandsupptaka er meðal gagna sem lögreglan hefur undir höndum í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti. Upptakan er úr öryggismyndavél í grennd við þar sem áflogin brutust út en atvikið átti sér stað á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti. | |
| 16:02 | Kourani beri ábyrgð á sprengjuhótununum 77 Sprengjuhótanir sem borist hafa ríkisstofnunum og fyrirtækjum landsins undanfarna daga og vikur hafa verið raktar til Sýrlands. RÚV greinir frá því að þær hafi allar borist frá netfangi sem Mohamed Thor Jóhannesson, áður Mohamed Kourani, hefur áður notað. | |
| 14:14 | Roskið fólk sankar að sér reiðufé 75 Almenningur, sérstaklega eldra fólk, hefur undanfarið verið að taka út reiðufé í stórum stíl og sumir háar upphæðir vegna upplýsinga í bæklingi almannavarna „Verum viðbúin“.Þetta kemur fram í tilkynningu Félags eldri borgara sem send var á félagsmenn eftir að Almannavarnir höfðu samband við félagið. Einn af stóru bönkunum vakti athygli Almannavarna á málinu eftir að bæklingurinn var gefinn út. Í bæklingi Almannavarna eru ábendingar sem undirbúa eiga almenning fyrir aðstæður sem raskað gætu daglegu lífi, til dæmis ef náttúruhamfarir eiga sér stað, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir eða aðrar áskoranir. Til að bregðast við slíkum aðstæðum er meðal annars bent á að gott sé að eiga tiltækt reiðufé. Sú upphæð ráðist af fjölda þeirra sem eru á heimilinu og hvaða vörur þarf að vera hægt að kaupa. | |
| 13:04 | Íslenskur karlmaður lést af völdum Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómsins 100 Íslenskur karlmaður lést af völdum Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómsins 1. nóvember. Þetta kemur fram í skriflegu svari landlæknis við fyrirspurn fréttastofu þar sem staðfest er að dánarvottorð hafi borist embættinu þar sem sú dánarorsök er staðfest.Sjúkdómurinn er afar sjaldgæfur, til í nokkrum mismunandi gerðum, og tilheyrir sama flokki og riðuveiki í dýrum. Sóttvarnalæknir segir í sérstöku svari að hvorki hafi borist greiningar um sjúkdóminn né klínísk tilkynning.Samkvæmt upplýsingum úr farsóttarskrá hefur Creutzfeldt-Jakob greinst þrisvar áður hér á landi, árin 2006, 2020 og 2023 og þrjú andlát af hans völdum síðan 1996. Það fyrsta árið 1997, annað 2007 og það þriðja 2022.Orsök sjúkdómsins er smitefnið príon, afbrigðilegt prótín sem umbreytir eðlilegum prótínum í afmyndað form. Creutzfeldt-Ja |
| 21:11 | Sendi ríflega 300 fyrirspurnir: „Sjálfstæðismenn orðnir hinir nýju Píratar“ 55 Guðlaugur Þór Þórðarsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd, hefur síðustu daga sent rúmlega þrjú hundruð fyrirspurnir til ráðuneyta. Formaður nefndarinnar sakar Guðlaug um að reyna að „setja sand í tannhjólin“ og kallar Sjálfstæðismenn „hina nýju Pírata“. Guðlaugur segir þetta vera einu leiðina til að nálgast tiltekin gögn um fjárlagafrumvarpið sem ekki sé að finna í opinberum gögnum. | |
| 15:30 | „Það eru allir að frjósa úr kulda“ 54 „Það eru enn 12 manns þarna og allt rafmagnslaust. Það eru allir að frjósa úr kulda,“ segir Bergþóra Pálsdóttir, talskona hjólabúa, spurð út í hjólhýsabyggðina á Sævarhöfða. | |
| 15:04 | Hafi neytt konu til munnmaka í bíl 53 Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað konu í bíl í Hafnarfirði sumarið 2024, meðal annars með því að neyða hana til að hafa við sig munnmök. | |
| 12:17 | Facebook bannar bók Ólafs Ragnars 100 Jón Heiðar Gunnarsson, markaðsstjóri Forlagsins, segir að Meta hafi gefið þær skýringar að bókin sé „of pólitísk“ | |
| 10:41 | Skilaði ís sem reyndist vera kjöt 63 Ýmislegt skondið hefur komið upp á í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði á þeim 53 árum sem fjölskylda Gísla Sigurbergssonar hefur rekið verslunina. |
| 21:01 | „Eitthvað um að við værum limsystur“ 63 Kona sem bar vitni fyrir dómi í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur í dag sagði samstarfskonu þeirra hafa grátið á öxlinni á Íris vegna sögu um krabbamein og lyfjameðferð sem hún sagðist vera að ganga í gegnum. Þá lýsti barnsmóðir Sölva Guðmundssonar því hvaða áhrif meint áreiti hefur haft á dóttur þeirra. | |
| 21:00 | Neyddist til að mæta í vinnuna í bleyju: „Bjóst aldrei við því“ 72 „Kerfið sýndi mér þá, þetta er mjög grimmt. Það er engin hjálp,“ segir Dagbjört. | |
| 19:00 | Dvaldi tæpan sólarhring í Leifsstöð 63 Manninum var gert að halda sig á afmörkuðu svæði innan flugstöðvarinnar og verða sér úti um flugmiða frá landinu. | |
| 18:45 | Vildu segja öllum upp og tæma Fjarðarkaup 100 Fjárfestingarfélag sem sýndi áhuga á að kaupa Fjarðarkaup í Hafnarfirði vildi fá húsnæði verslunarinnar afhent tómt og gera ráð fyrir því að öllum starfsmönnum yrði sagt upp. | |
| 17:20 | „Allt útaf þessari konu sem hún hefur aldrei hitt“ 61 Meint áreiti Írisar Helgu Jónatansdóttur á hendur Garpi Elísabetarsyni og dóttur hans hefur haft gríðarleg áhrif að sögn barnsmóður Garps sem bar vitni í aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Brast hún í grát þegar hún lýsti því hvaða áhrif málið hafi haft á dóttur þeirra. |
| 21:32 | Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir 91 Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segir vinstrið í borgarstjórn aldrei munu styðja hagræðingaraðgerðir í borginni og að það hafi legið fyrir í langan tíma að taka þyrfti utan um rekstur Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúi Vinstrisins segir óljóst hver áhrifin af uppsögnum innan borgarinnar verði og þær gætu leitt til kostnaðar seinna meir. Fjárfesta þurfi í húsnæði. | |
| 21:18 | Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra 88 Framhaldsskólanemi nýtti sér öryggisbrest í Innu, innri vef sem fjöldi framhaldsskóla notar, og gerði tilraun til þess að breyta einkunum og mætingu hjá öðrum nemendum. Öryggisbresturinn snertir allt að sextán skóla. | |
| 16:11 | Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk 94 Sölvi Guðmundsson sem segir Írisi Helgu Erlingsdóttur hafa setið um sig og eltihrellt segir áhrifin hafa verið mjög mikil og valdið óöryggi og vanlíðan á heimi fjölskyldu hans. Eftir að ákæra var gefin út birtist dánartilkynning um Sölva í Morgunblaðinu sem var ekki fótur fyrir. | |
| 12:02 | Segir Írisi Helgu enn áreita sig 100 Maður sem segir að Íris Helga Jónatónsdóttir hafi áreitt sig segir hana hafa valdið sér og fjölskyldu sinni miklum sálrænum skaða og að þau telji sig ekki örugg lengur. Hún áreiti þau enn.Tekin var skýrsla af fyrsta brotaþola í máli Írisar Helgu við framhald aðalmeðferðar í morgun. Íris Helga er sökuð um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum, sambýliskonu eins þeirra, börnum tveggja þeirra og fjölskyldum.Maðurinn sagði að hegðun Írisar Helgu hefði valdið þeim mikilli hræðslu og kvíða.„Við þurftum alltaf að vera á varðbergi,“ sagði maðurinn.„Við gátum ekki upplifað eðlilega hversdagslega hluti eins og að hafa dyrnar ólæstar,“ sagði hann. Öryggistilfinning þeirra væri horfin. ÝMISLEGT UNDARLEGT Í FARI ÍRISAR HELGU Samband mannsins og Írisar Helgu hófst 2021 en því lauk í janúar | |
| 08:15 | Rússar harma orð Þorgerðar Katrínar 88 Orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um skrif Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra Flokks fólksins, sem hún lét falla á Alþingi í gær hafa valdið rússneska sendiráðinu bæði undrun og harmi, að því er fram kemur í færslu á Facebook-síðu sendiráðsins. SKRIF UM HERMENN OG KJARNORKUVOPN RÖTUÐU INN Á ÞING Heimir Már skrifaði athugasemd við færslu Emmanuels Macrons, forseta Frakklands, og hvatti hann til að senda hermenn til Úkraínu til að berjast við Rússa og hafa kjarnorkuvopnin tilbúin. Hann eyddi síðar færslunni og baðst afsökunar.Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði utanríkisráðherra út í orð Heimis Más. Hann sagði þau geta valdið Íslandi orðsporsáhættu. Þorgerður Katrín sagðist ekki sjá ástæðu til að elta ólar við færslu Heimis Más. Hún |