Mikill vandi steðjar að tónleikahaldi í heiminum í dag, sér í lagi hjá smærri listamönnum en margir þeirra stóru raka hins vegar inn seðlum. Þetta var meðal þess sem kom fram í pallborðsumræðum á ráðstefnu sem haldin var í tengslum við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves fyrr í mánuðinum.