Þrátt fyrir skarpa hækkun hlutabréfaverðs Ása undanfarnar vikur, samhliða auknum kaupum Stoða, þá er félagið sagt talsvert undirverðlagt samkvæmt nýrri greiningu. Afkoma grunnrekstrarins hefur gefið eftir á þessu ári en gert er ráð fyrir stórauknum rekstrarhagnaði á næstu árum samhliða því að samlegðaráhrif vegna umfangsmikilla fyrirtækjakaupa koma fram.