Átján ára piltur lést og sex aðrir særðust í skotárás í náttfataveislu í húsi í Davenport í Flórída á þakkargjörðardaginn. Fimmtán ára stúlka er í lífshættu en áverkar hinna fimm eru ekki taldir lífshættulegir, að sögn lögreglu. Grady Judd, lögreglustjóri í Polk-sýslu, sagði á blaðamannafundi að um 50 ungmenni frá Orlando hefðu mætt í veisluna eftir að hún var auglýst...