Tilkynnt var í vikunni að opna ætti allt að fimm Burger King-staði á Íslandi á næstu misserum. Sá fyrsti verður opnaður á bensínstöð N1 við Bíldshöfða næsta vor. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Burger King er starfræktur á Íslandi því árið 2004 var einn slíkur opnaður í Smáralind.