Lögregla í Indónesíu hefur handtekið fjórar unglingsstúlkur vegna gruns um aðild að dauða sautján ára skólastúlku í borginni Malang á Austur Jövu. Málið, sem tengist meintu einelti, hefur vakið mikla reiði í landinu. Stúlkurnar eru á aldrinum sextán til sautján ára. Danang Setiyo Pambudi, lögreglustjóri í Malang, sagði tvær stúlknanna hafa sótt hina látnu á heimili foreldra hennar á miðvikudagskvöld....