Hjálp48 er tilraunaverkefni sem hófst á Akureyri í fyrra. Nú er hafin innleiðing á Suðurnesjum og undirbúningur innleiðingar á höfuðborgarsvæðinu. Úrræðið er rekið af Sorgarmiðstöðinni og hefur það markmið að grípa aðstandendur eftir skyndilegan ástvinamissi utan sjúkrahússtofnana og veita þeim viðeigandi stuðning og eftirfylgd.