Mál karlmanns sem grunaður var um að hafa brotið kynferðislega gegn barni á leikskólanum Garðaseli á Akranesi var fellt niður í lok október. Ákvörðunin hefur verið kærð til ríkissaksóknara og er niðurstöðu hans beðið. Þetta kemur fram í svari Karls Inga Vilbertssonar varahéraðssaksóknara við fyrirspurn Vísis. Málið barst ákærendum 14. september og kom það í hlut Karls Inga að ákveða...