Kærunefnd húsamála hefur hafnað kröfum leigjanda sem mótmælti því að þurfa að rýma félagslega leiguíbúð sína eftir eldsvoða í janúar. Nefndin taldi leigusalanum heimilt að krefjast rýmingar ef hún væri nauðsynleg vegna viðgerða. Hún taldi jafnframt að leigjandinn gæti snúið aftur í íbúðina að framkvæmdum loknum. Leigjandinn hefur búið í íbúðinni frá desember 2011 samkvæmt ótímabundnum leigusamningi. Eldur kom upp...