Ónefnt tryggingafélag hefur neitað að fara eftir úrskurði úrskurðarnefndar í vátryggingamálum um að því beri að greiða eiganda hests frekari bætur en það hefur nú þegar gert. Til stóð að selja hestinn til Þýskalands en af því varð ekki þar sem talið var nauðsynlegt að fella hann.