Jarðskjálfti gekk yfir í Reykjadal á ellefta tímanum í dag. Skjálftinn mældist 3,4 að stærð. Síðast varð skjálfti á þessum stað af þessari stærð í október 2021 en sá var 3,3 að stærð. Íbúi í Hveragerði líkti skjálftanum við að einhver hefði slegið húsið með stærðarinnar sleggju. Annar sem húsið hefði verið sett í kassa og sparkað fram af tröppu.