Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð, segir viðbragðsaðila vera að tala sig saman en appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á Norðvesturlandi í kvöld. Hann hvetur fólk til þess að huga að lausamunum og eigendur smábáta til þess að kíkja í höfnina og tryggja festingar.