Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi sex menn í fangelsi fyrir umferðarlagabrot í jafnmörgum málum 25. nóvember. Refsingarnar voru frá 30 dögum upp í fimm mánuði. Fjórir mannanna voru sviptir ökurétti ævilangt frá birtingu dómanna og hjá þeim fimmta var fyrri ævilöng svipting áréttuð. Tveir hlutu fimm mánaða fangelsisdóm. Annar þeirra ók sviptur ökurétti í tólf skipti frá janúar til júlí á þessu...