Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti 26. nóvember að ráða Ástu Bjarneyju Elíasdóttur í stöðu skólastjóra Lágafellsskóla. Hún hefur störf á nýju ári. Átta umsóknir bárust um starfið. Ásta Bjarney lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1996 og hefur síðan stundað meistaranám í stjórnun menntastofnana og lokið tveimur viðbótardiplómum á meistarastigi við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem skólastjóri frá haustinu 2012, síðast...