Sendiráð Íslands í Malaví hefur í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar afhent 33 mótorhjól, fjórar bifreiðar og þrjá sjúkrabíla til að efla þjónustu sveitarfélaga í landinu. Ríkisútvarp Malaví greinir frá þessu. Ökutækin voru afhent fyrir milligöngu ráðuneytis sveitarstjórnarmála og byggðaþróunar í Malaví. Mótorhjólin fara til Machinga, Balaka og Salima og fær hvert sveitarfélag einnig einn sjúkrabíl. Þrjár bifreiðar fara til Mangochi...