Íslenska kokkalandsliðinu var vel fagnað við heimkomuna í gærkvöldi. Liðið náði framúrskarandi árangri og hafnaði í 4. sæti, sem er jafnframt besti árangur þess á heimsmeistaramótinu í matreiðslu. Heimsmeistaramótið fór fram í Lúxemborg að þessu sinni og mikið var um dýrðir í Luxexpo-höllinni þegar úrslitin voru kunngerð.