Í Chile er það jafnan tilefni mikilla hátíðahalda þegar ný skip eru sjósett. Á því var engin undantekning þegar tog- og nótaskip Haraldar Böðvarssonar hf. var sjósett í Asmar skipasmíðastöðinni í Talcahuano eftir að hafa verið gefið nafnið Ingunn. Frá þessu sagði í Fiskifréttum 12. nóvember 1999.