Lögregla í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum leitar að Rebeccu Taylor, 26 ára barnshafandi fanga sem er grunuð um að hafa ekið á brott á bifreið fangelsisyfirvalda á miðvikudag. Hún hafði verið flutt úr fangelsi í mæðraskoðun og var í fylgd þriggja fangavarða þegar þeir stönsuðu við skyndibitastað í Albuquerque. Að sögn talsmanns fangelsisyfirvalda í Nýju Mexíkó var Taylor laus við...