Ein af skemmtilegustu og um leið óvæntustu dýrafréttum ársins sem nú er að líða birtist fyrst í vísindaritinu Current Biology í janúar. Þar sagði frá kúnni Veronica og hátterni hennar, en það kom vísindamönnum vægast sagt í opna skjöldu. Veronica virtist í alla staði venjuleg kýr. Hún lifir friðsælu lífi á bændabýli nálægt Vínarborg, höfuðborg Austurríkis, og sinnir þar mjólkurframleiðslu...