„Ég veit ekki hvernig þið segið það. Á arabísku tölum við um að sjá dauðann með eigin augum. Ég sá fram á að ég væri að fara að deyja.“ Svona lýsir Mwafak Almasri, betur þekktur sem Samuel, líðan sinni á meðan honum var haldið nauðugum á heimili sínu í Reykholti í Biskupstungum í apríl 2024. Samuel, sem er á sjötugsaldri og brotaþoli í Reykholtsmálinu svokallaða, segir nú sögu sína í fyrsta sinn í nýjasta þætti Eftirmála.