Par sem var í hávaðarifrildi og með barn meðferðis var handtekið í Laugardal í Reykjavík og vistað í fangaklefa. Parið var í „mjög annarlegu ástandi“ sökum ölvunar og var barninu komið í umsjón barnaverndar. Þá var einstaklingur handtekinn í miðborginni vegna líkamsárásar og vistaður í fangaklefa.