Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók par sem var í hávaðarifrildi í Laugardalnum í Reykjavík. Parið var með barn meðferðis og var að sögn lögreglu í mjög annarlegu ástandi vegna ölvunar. Bæði voru vistuð í fangaklefa og barninu komið í umsjón barnaverndar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar fyrir gærkvöldið og nóttina. Þar kemur einnig fram að einn hafi verið handtekinn vegna...