Engin gögn voru tekin í gíslingu í tölvuárás sem gerð var á Reykjavíkurborg á miðvikudag og svo virðist sem árásin hafi verið stöðvuð áður en gagnagíslataka hafi getað farið af stað. Ekki er vitað hver stóð að baki árásinni, að sögn forstjóra Syndis.