Bæjarstjórn Kópavogs hefur fellt tillögu Samfylkingarinnar um að setja þak á fasta yfirvinnu í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar töldu að þannig mætti spara tæpar 170 milljónir króna á ári en Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri sagði að sparnaðurinn kæmi beint niður á launum starfsfólks.