Félag múslima á Íslandi hefur sent fjölskyldum og vinum skipverjanna þriggja sem fórust með Jökli ÞH innilegar samúðarkveðjur. Félagið á aðild að Samráðsvettvangi trúfélaga og lífsskoðunarfélaga á Íslandi sem býður öllum til kyrrðarstundar í Fossvogskapellu klukkan 17 í dag. Jökull ÞH sökk austur af landinu miðvikudaginn 25. nóvember. Fjórtán skipverjum var bjargað. Í færslu á Facebook segir Félag múslima að...