Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að ákvörðun um að flýta vinnu í tengslum við að Landhelgisgæslan fái fjórðu björgunarþyrluna til umráða hafi verið auðveld. Til allrar lukku sé búið að ná þeim tökum á ríkisfjármálum að svigrúm sé til að bregðast við óvæntum kostnaði.