Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að lögreglu væri áfram heimilt að halda fjórum leikjatölvum og tveimur farsímum manns sem er til rannsóknar vegna gruns um kynferðisbrot. Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á tækin við húsleit á heimili mannsins 9. janúar. Þar á meðal voru tvær PlayStation 5 leikjatölvur, ein PlayStation 4 og ein Xbox. Maðurinn veitti lögreglu...