Félagar Slysavarnafélagsins Landsbjargar senda fjölskyldum og ástvinum skipverjanna þriggja sem fórust með Jökli ÞH innilegustu samúðarkveðjur. Í færslu á Facebook lýsir félagið jafnframt þakklæti fyrir björgun þeirra fjórtán sem komust lífs af. „Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi. Hugur okkar er hjá ykkur og öllum sem nú syrgja,“ segir í færslunni. Félagar Landsbjargar segjast einnig hugsa til skipverjanna...