Nafn þriðja mannsins

Jacek Belina hét þriðji maðurinn sem lést þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk austur af landinu á miðvikudagskvöld. Hann var fæddur árið 1974 og var frá bænum Ustka við Eystrasaltsströnd Póllands. Áður hafði verið greint frá nöfnum Eggerts Ellertssonar og Aðalsteins Steinþórssonar, sem fórust í slysinu. Þrír af sautján skipverjum Jökuls létust en fjórtán komust lífs af.
Nafn þriðja mannsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar