* Þrír fórust í skipsskaða þegar Jökull ÞH 299 sökk 60 sjómílur austur af landinu. 14 var bjargað. * Eggert Ellertsson, Jacek Belina og Aðalsteinn Steinþórsson fórust. * Aðeins ein þyrla var til taks þegar skipið sökk. Áhöfnin braut verklag til að bjarga skipverjunum sem voru marga klukkutíma í sjónum áður en hjálp barst. * Forsætisráðherra hefur heitið því að Landhelgisgæslan fái fjórðu þyrluna áður en þessu kjörtímabili lýkur. * Ríkisstjórnin ákvað í morgun að fjórða þyrlan verði staðsett á Akueyri.