Á meðan hlutabréfavísitala evrópskra fjarskiptafélaga hefur hækkað um átta prósent á síðustu tólf mánuðum hefur hlutabréfaverð Nova lækkað um fjórðung. Greinendur telja að aðgerðir stjórnenda Nova til að draga úr kostnaði í fjarskiptarekstrinum hafi skilað góðum árangri en aukin fjárbinding hjá Ofar kemur niður á sjóðstreymi samstæðunnar.