Átján ára háseti sem var um borð í fiskiskipinu Jökli ÞH, sem sökk á miðvikudag, segist hafa þraukað í sjónum með því að einbeita sér að því að huga að félögum sínum. Ásgeir Elí Gerðarson var í hópi níu manna sem bundu sig saman í keðju í sjónum á meðan þeir biðu eftir björgun en tveir úr þeim hópi létust. Hann var síðasti maðurinn á lífi sem var hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Við heyrum í Ásgeiri Elí í hádegisfréttum en ítarlegt viðtal við hann birtist á Vísi síðar í dag. Þar lýsir hann því sem gekk á um borð áður en skipið fórst og tilfinningunni þegar björgun barst.