Eiður Benedikt Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þórs. Um er að ræða nýja stöðu hjá knattspyrnudeildinni og mun Eiður hafa yfirumsjón með öllu starfi deildarinnar með sérstakri áherslu á meistaraflokksliðin og umgjörð þeirra. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Þórs, thorsport.is.