U21 landsliðsmaðurinn Tómas Orri Róbertsson hefur skrifað undir nýjan samning við FH og er nú samningsbundinn út tímabilið 2029. Fyrri samningur hefði runnið út eftir tímabilið 2028. Tómas Orri kom til FH frá Breiðabliki fyrir tímabilið 2025 og varð strax lykilleikmaður í liði FH. Frá komu sinni í FH hefur hann spilað ellefu leiki fyrir U21 landsliðið. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa bæði Breiðablik og ÍA verið að horfa til miðjumannsins síðustu mánuði.