Ýkjur væri að segja að flóðhestar og fílar séu óvinir úti í náttúrunni. Þær stóru skepnur hafa yfirleitt lítið hvor af annarri að sælda enda eru lifnaðarhættir þeirra ólíkir. Fílar háma í sig laufblöð, ávexti og annan gróður á landi uppi en flóðhestar svamla í ám og vötnum og éta sef. Þær hittast helst þegar fílar koma niður að vatni...