Gular veðurviðvaranir vegna sunnan hvassviðris eru nú í gildi víða um land, á austanverðu sem og á norðanverðu landinu falla þær úr gildi snemma í dag en á Breiðafirði og á Vestfjörðum taka viðvaranirnar við nú í morgun og eru í gildi til klukkan þrjú í dag. Von er á smálægð til landsins á morgun með suðaustanátt og rigningu og slyddu.