Tveir einstaklingar voru handteknir vegna gruns um rán og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir gærkvöldið og nóttina. Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna skemmda á bifreið. Tilkynnandi sagðist hafa séð einstakling ganga yfir bifreiðina og kvað hana hafa verið skemmda í kjölfarið. Hjólreiðamaður var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar...