Árni Bjarnason, bóndi á Uppsölum í Blönduhlíð í Skagafirði, lést 20. nóvember á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki, 95 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá andláti hans. Árni fæddist á Uppsölum 8. nóvember 1931 og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi á Laugum í Þingeyjarsveit og lærði þar smíðar. Hann tók ungur við búi foreldra sinna og stundaði búskap á Uppsölum...